Aragerði að vetrarlagi

Rafn Sigurbjörnsson ljósmyndari tók mjög skemmtilegar myndir úr Aragerði í byrjun ársins. Hér gefur að líta nokkrar af þeim myndum sem hann tók. Fleiri myndir er að finna  hér til vinstri undir, "Um Vatnsleysustrandarhrepp- Aragerði". Gerð var tilraun með lýsa upp Aragerði í skammdeginu. Var mikil fegurð af þessari lýsingu og stendur til að endurbæta hönnun hennar fyrir næsta vetur svo íbúar og aðrir geti notið fegurðarinnar betur.