Áminning til kattaeigenda

Sveitarfélagið minnir kattaeigendur í Vogum á skyldur sínar samkvæmt því sem fram kemur í Samþykkt um kattahald á Suðurnesjum og gildir í Sveitarfélaginu Vogum. Skylt er að skrá alla ketti hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja og greiða af þeim leyfisgjald. Allir kettir skulu vera með örmerkingu eða húðflúrmerkingu.

Kattaeigendur eru hvattir til að kynna sér vel samþykkt um kattahald sem finna má hér á heimasíðunni.