Alþingiskosningar

Kosið er í Stóru-Vogaskóla, Tjarnargötu 2.
Kjörstaður opnar kl. 10:00 og lokar kl. 22:00.
Kjósendur skulu framvísa persónuskilríki á kjörstað.

Kjörskrá liggur frammi almenningi til sýnis, frá miðvikudegi 18. október fram að kjördegi á bæjarskrifstofu Sveitarfélagsins Voga, Iðndal 2.

Kjósendur eru hvattir til að kynna sér hvort nöfn þeirra séu á kjörskrá. Athugasemdum við kjörskrá skal beint til bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Voga á netfangið skrifstofa@vogar.is.

Athygli er vakin á því að kjósendur geta kannað á vefnum kosning.is hvar þeir eru á kjörskrá



Kjörstjórn Sveitarfélagsins Voga