Álagning fasteignagjalda

Á næstu dögum eiga fasteignaeigendur von á álagningarseðli ársins 2009 inn um lúguna hjá sér. Í ljósi þess er ekki úr vegi að fara aðeins yfir þær forsendur sem liggja til grundvallar álagningunni. Engar breytingar eru milli áranna 2008 og 2009. Gjaldskrár, skattar og afslættir eru óbreyttir milli ára, sem og fasteignamat frá Fasteignaskrá Íslands (áður Fasteignamat ríkisins).  

 

Álagning fasteignagjalda fer samkvæmt lögum um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/static/files/import//1995 með síðari breytingum.

 

Fasteignaskattur er reiknaður af álagningarstofni og lóðarmati, 0,28 % fyrir íbúðarhúsnæði, 1,40 % fyrir atvinnuhúsnæði og 1,32% fyrir opinbert húsnæði. Auk fasteignaskatts er innheimt lóðarleiga, vatnsgjald, holræsagjald, sorphirðu- og sorpeyðingargjald á álagningarseðli.

 

Sorpeyðingargjaldið og sorphirðugjaldið er samræmt yfir Suðurnesin, en sveitarfélögin á Suðurnesjum reka sorphirðu og eyðingu sameiginlega.  Innheimt er sorphirðugjald fyrir hverja sorptunnu, og sorpeyðingargjald fyrir hvert fasteignanúmer.  Þeir fasteignaeigendur sem eru með fleiri en eina tunnu frá Kölku geta skilað aukatunnum sem þeir þurfa ekki að nota, og fá þá fellt niður auka sorphirðugjaldið. Þeir sem eru með Græna tunnu greiða ekki auka sorphirðugjald, enda greiðir viðkomandi beint til þjónustuaðilans fyrir þá tunnu.  

 

Öryrkjum og eldri borgurum er veittur afsláttur af fasteignasköttum og holræsagjaldi íbúðarhúsnæðis til eigin nota í samræmi við  Reglur um lækkun og niðurfellingu fasteignaskatts elli- og örorkulífeyrisþega.  Þær reglur má nálgast á vefnum www.vogar.is

 

Afsláttur reiknast sem hér segir:

Tekjur allt að 1.850.000 á einstakling, hjón allt að 2.800.000…………………100 %

Tekjur allt að 2.100.000 á einstakling, hjón allt að 3.200.000………………….75 %

Tekjur allt að 2.400.000 á einstakling, hjón allt að 3.550.000………………….50 %

Tekjur allt að 2.650.000 á einstakling, hjón allt að 4.000.000………………….25 %

 

Afslátturinn er reiknaður á grundvelli heildarárstekna heimilisins næsta ár á undan álagningarárinu. Það er að segja, afsláttur af fasteignasköttum ársins í ár miðast við tekjur ársins 2008. Þar af leiðandi er fyrst hægt að sækja um afsláttinn þegar skattaskýrsla hefur verið unnin. Þessi breyting ætti að koma öryrkjum og eldri borgurum vel, ekki síst þeim sem eru að koma af vinnumarkaði og hafa haft miklar tekjur þarsíðasta ár fyrir álagningu og hefðu þar að leiðandi hugsanlega ekki fengið afslátt.

 

Umsækjendur skulu leggja fram umsókn á eyðublöðum sem nálgast má á vefnum www.vogar.is og á bæjarskrifstofum, ásamt endurriti af skattframtali og örorkumatsvottorð, ef við á.

 

Umsóknarfrestur er til 15. apríl 2009.

 

Síðast en ekki síst hefur bæjarstjórn ákveðið að veita 5% staðgreiðsluafslátt af fasteignaskatti og holræsagjaldi, séu gjöldin að fullu greidd eigi síðar en 27. febrúar 2009.