Álagning fasteignagjalda

Í byrjun febrúar eiga fasteignaeigendur von á álagningarseðli fasteignagjalda ársins 2008 inn um lúguna hjá sér. Í ljósi þess er ekki úr vegi að fara aðeins yfir þær forsendur sem liggja til grundvallar álagningunni og þeim breytingum sem verða á milli ára.

Álagning fasteignagjalda fer samkvæmt lögum um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/static/files/import//1995 með síðari breytingum. Fasteignamat ríkisins tók um þarsíðustu áramót upp nýtt kerfi til álagningar fasteignagjalda. Nú vinna öll sveitarfélög álagninguna í sama kerfinu og skapast af því umtalsvert hagræði.

Fasteignaskattur er reiknaður af álagningarstofni og lóðarmati. Samkvæmt auglýsingu frá Fasteignamati ríkisins hækkar fasteignamat í Sveitarfélaginu Vogum fyrir árið 2007 um 12%. Hækkun fatseignagjalda á íbúðahúsnæði og atvinnuhúsnæði hækkar því um 12% frá árinu 2006. Hinsvegar hefur bæjarstjórn ákveðið að lækka álagningarhlutfallið um 7%. 

Álagningarhlutfall fasteignaskatta lækkar því úr 0,30% í 0,28% fyrir íbúðarhúsnæði og úr 1,50% í 1,4% fyrir atvinnuhúsnæði. Álagningarhlutfall fasteignaskatta í Sveitarfélaginu Vogum er þar með orðin lægst á Suðurnesjum.  Auk fasteignaskatts er innheimt lóðarleiga, vatnsgjald, holræsagjald, sorphirðu- og sorpeyðingargjald á álagningarseðli.

Sorpeyðingargjaldið og sorphirðugjaldið hækkaði um 9% milli ára í öllum sveitarfélögunum á Suðurnesjunum vegna aukins rekstrarkostnaðar sorpbrennslustöðvarinnar Kölku.

Öryrkjum og eldri borgurum er veittur afsláttur af fasteignasköttum og holræsagjaldi íbúðarhúsnæðis til eigin nota í samræmi við  Reglur um lækkun og niðurfellingu fasteignaskatts elli- og örorkulífeyrisþega . Þær reglur má nálgast hér að neðan.

Afsláttur reiknast sem hér segir.
Tekjur allt að:

Einstaklingur  Hjón Afsláttur
1.850.000  2.800.000 100%
2.100.000 3.200.000 75%
2.400.000 3.550.000 50%
2.650.000 4.000.000 25%

 
    
  


Eins og síðasta ár er afslátturinn reiknaður á grundvelli heildarárstekna heimilisins næsta ár á undan álagningarárinu, en ekki þar síðasta árs. Það er að segja, afsláttur af fasteignasköttum ársins í ár miðast við tekjur ársins 2007. Þar af leiðandi er fyrst hægt að sækja um afsláttinn þegar skattaskýrsla hefur verið unnin, sem er væntanlega í flestum tilvikum í mars. 

Þessi breyting ætti að koma öryrkjum og eldri borgurum vel, ekki síst þeim sem hafa haft miklar tekjur þarsíðasta ár fyrir álagningu og hefðu þar að leiðandi hugsanlega ekki fengið afslátt.

Umsækjendur skulu leggja fram umsókn á eyðublöðum sem nálgast má á vefnum www.vogar.is og á bæjarskrifstofum, ásamt endurriti af skattframtali og örorkumatsvottorð, ef við á.
Umsóknarfrestur er til 15. apríl 2008.

Síðast en ekki síst hefur bæjarstjórn ákveðið að veita 5% staðgreiðsluafslátt af fasteignaskatti, séu gjöldin að fullu greidd eigi síðar en 28. febrúar 2008.

Sjá nánar:
Reglur um afslátt af fasteignasköttum
Umsóknareyðublað