Áhugaverð störf í félagsmiðstöð og Frístundaskóla

Félagsmiðstöðin Boran auglýsir laus störf í félagsmiðstöðinni og Frístundaskólanum.

Viltu vinna með unglingum ?

Laus er til umsóknar staða leiðbeinanda í kvöldstarfi unglinga í félagsmiðstöðinni Borunni. Félagsmiðstöðin býður upp á fjölbreytt tómstundastarf fyrir unglinga á aldrinum 14-16 ára. Um er að ræða ca tvö kvöld í viku.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Skipulagning á faglegu tómstundastarfi fyrir unglinga á aldrinum 14-16 ára
• Leiðbeina unglingum í starfi
• Samráð og samvinna við unglinga og starfsfólk
Hæfniskröfur
• Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi
• Áhugi á að vinna með unglingum
• Frumkvæði, stundvísi og sjálfstæð vinnubrögð
• Lipurð í mannlegum samskiptum

Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Suðurnesja. Umsóknir skulu sendast á tinna@vogar.is fyrir 25. ágúst. Nánari upplýsingar veitir Tinna Hallgrímsdóttir í síma 440-6225.

 
Áhugaverð störf í Frístundaskóla

Lausar eru til umsóknar stöður leiðbeinanda við frístundaskóla félagsmiðstöðvarinnar Borunnar. Í frístundaskólanum er boðið upp á fjölbreytt  tómstundastarf þegar hefðbundnum skóladegi hjá börnum í 1.-3. bekk lýkur.

Helstu verkefni og ábyrgð
• Skipulagning á faglegu frístundastarfi fyrir 6-9 ára börn
• Leiðbeina börnum í leik og starfi
• Samráð og samvinna við börn og starfsfólk
• Samskipti og samstarf við foreldra
Hæfniskröfur
• Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi
• Áhugi á að vinna með börnum
• Frumkvæði, stundvísi og sjálfstæð vinnubrögð
• Lipurð í mannlegum samskiptum
Vinnutími er frá 13:00-17:00 alla virka daga. Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Suðurnesja. Umsóknir skulu sendast á tinna@vogar.is fyrir 25. ágúst. Nánari upplýsingar veitir Tinna Hallgrímsdóttir í síma 440-6225.