Afsláttur elli- og örorkulífeyrisþega af fasteignaskatti

Öryrkjum og eldri borgurum er veittur afsláttur af fasteignasköttum og holræsagjaldi íbúðarhúsnæðis til eigin nota í samræmi við  Reglur um lækkun og niðurfellingu fasteignaskatts elli- og örorkulífeyrisþega.

Afsláttur reiknast sem hér segir:
Tekjur allt að 2.405.931 á einstakling, hjón allt að 3.638.526…………………100 %
Tekjur allt að 2.725.931 á einstakling, hjón allt að 4.148.156………………….75 %
Tekjur allt að 3.117.044 á einstakling, hjón allt að 4.616.305………………….50 %
Tekjur allt að 3.442.970 á einstakling, hjón allt að 5.730.381………………….25 %

Eins og síðasta ár er afslátturinn reiknaður á grundvelli heildarárstekna heimilisins næsta ár á undan álagningarárinu. Það er að segja, afsláttur af fasteignasköttum ársins í ár miðast við tekjur ársins 2014. Þar af leiðandi er fyrst hægt að sækja um afsláttinn þegar skattframtal hefur verið unnið.

Umsækjendur skulu leggja fram umsókn á eyðublöðum sem nálgast má hér fyrir neðan og á bæjarskrifstofu, ásamt afriti af skattframtali og örorkumatsvottorð, ef við á.

Umsóknarfrestur er til 17. apríl 2015.

Umsóknareyðublað (pdf)