Afsláttur elli- og örorkulífeyrisþega af fasteignaskatti

Öryrkjum og eldri borgurum er veittur afsláttur af fasteignasköttum og holræsagjaldi íbúðarhúsnæðis til eigin nota í samræmi við  Reglur um lækkun og niðurfellingu fasteignaskatts elli- og örorkulífeyrisþega

Afsláttur reiknast sem hér segir:
Tekjur allt að 2.291.363 á einstakling, hjón allt að 3.465.263…………………100 %
Tekjur allt að 2.596.125 á einstakling, hjón allt að 3.950.625………………….75 %
Tekjur allt að 2.968.613 á einstakling, hjón allt að 4.396.481………………….50 %
Tekjur allt að 3.279.019 á einstakling, hjón allt að 5.457.506………………….25 %

Eins og síðasta ár er afslátturinn reiknaður á grundvelli heildarárstekna heimilisins næsta ár á undan álagningarárinu. Það er að segja, afsláttur af fasteignasköttum ársins í ár miðast við tekjur ársins 2013. Þar af leiðandi er fyrst hægt að sækja um afsláttinn þegar skattframtal hefur verið unnið.

Umsækjendur skulu leggja fram umsókn á eyðublöðum sem nálgast má hér og á bæjarskrifstofu, ásamt afriti af skattframtali og örorkumatsvottorð, ef við á.
Umsóknarfrestur er til 11. apríl 2014.