Afsláttur elli- og örorkulífeyrisþega af fasteignaskatti

Öryrkjum og eldri borgurum er veittur afsláttur af fasteignasköttum og holræsagjaldi íbúðarhúsnæðis til eigin nota í samræmi við Reglur um lækkun og niðurfellingu fasteignaskatts elli- og örorkulífeyrisþega.

Afsláttur reiknast sem hér segir:
Tekjur allt að 2.182.250 á einstakling, hjón allt að 3.300.250                          100 %
Tekjur allt að 2.472.500 á einstakling, hjón allt að 3.762.500                            75 %
Tekjur allt að 2.827.250 á einstakling, hjón allt að 4.187.125                            50 %
Tekjur allt að 3.122.875 á einstakling, hjón allt að 5.197.625                            25 %

Eins og síðustu ár er afslátturinn reiknaður á grundvelli heildarárstekna heimilisins næsta ár á undan álagningarárinu. Það er að segja, afsláttur af fasteignasköttum ársins í ár miðast við tekjur ársins 2012. Þar af leiðandi er fyrst hægt að sækja um afsláttinn þegar skattskýrsla hefur verið unnin.

Umsækjendur skulu leggja fram umsókn á eyðublöðum sem nálgast má hér og á bæjarskrifstofum, ásamt endurriti af skattframtali og örorkumatsvottorð, ef við á.

Umsóknarfrestur er til 15. apríl 2013.