Afleysingastaða matráðs

Vegna veikindaforfalla vantar matráð í Heilsuleikskólann Suðurvelli um óákveðinn tíma. Viðkomandi þarf að vera snyrtilegur, með jákvætt og hlýlegt viðmót, heiðarlegur, stundvís og samviskusamur. 

Karlar jafnt sem konur eru hvött til að sækja um starfið.  Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.  Vinnutíminn er  08:00-16:00.

Nánari upplýsingar veita Salvör Jóhannesdóttir skólastjóri leikskólans og María Hermannsdóttir aðstoðarskólastjóri í síma 424-6817.