Afleysing í félagslegri heimaþjónustu í Vogum

Félagsþjónustan óskar eftir að ráða starfsmann í afleysingu til að sinna félagslegri heimaþjónustu í sveitarfélaginu Vogum. Í starfinu felst að efla notendur þjónustunnar til sjálfshjálpar og stuðla að því að viðkomandi geti búið sem lengst á einkaheimili sínu með því að aðstoða við heimilishald, persónulega umhirðu og/eða umönnun barna auk þess að veita félagslegan stuðning og hvatningu.

Um er að ræða 60% starf og geta verkefni verið breytileg eftir þörfum notenda. Mikilvægt er að starfsmaður hafi áhuga á og ánægju af mannlegum samskiptum. Gott væri ef viðkomandi gæti byrjað sem fyrst.

Umsóknarfrestur er til 15. ágúst nk.

Umsóknum má skila rafrænt á netfangið gudrun@sandgerdi.is  eða á bæjarskrifstofuna í Vogum að Iðndal 2, 190 Vogar.

Nánari upplýsingar veitir Guðrún Björg Sigurðardóttir, félagsráðgjafi  í síma 420 7555 eða Anna Hulda Friðriksdóttir, skrifstofustjóri í síma 440-6200