AF STAÐ á Reykjanesið- Ketilsstígur

AF STAÐ á Reykjanesið:  2. ferð, laugardaginn 10. maí, kl. 11, Ketilsstígur, Djúpavatnsleið – Krýsuvík, Sveinshús, 7 km.

Til að komast á upphafsstað göngu er ekin Krýsuvíkurleið frá Hafnarfirði að skilti þar sem á stendur Djúpavatn, beygt þar til hægri og ekið að skilti sem á stendur “Ketilsstígur”.

Ketilsstígur er hluti þjóðleiðar milli Hafnarfjarðar og Krýsuvíkur. Ferðamálasamtök Suðurnesja hafa staðið fyrir því að láta stika leiðina. Gengið verður frá Móhálsadal, um Ketilinn í vestanverðum Sveifluhálsi og yfir hálsinn framhjá Arnavatni, niður á Seltún og síðan að Sveinshúsi ofan við Gestsstaðavatn. Svæðið býr yfir kyngimagnaðri náttúru, minjum og sögum sem leiðsögumenn munu miðla á leiðinni. Áætlað er að gangan taki  ca. 3-4 klst. með fræðslustoppum. Auðveld leið en gott er að vera með nesti og í góðum skóm. Allir á eigin ábyrgð. Akstur til baka kr. 500. Frítt fyrir börn.

Gangan er önnur ferð af fimm menningar- og sögutengdum gönguferðum um hluta af gömlu þjóðleiðunum á Reykjanesskaganum sem farnar verða í maí ´08. Boðið er upp á þátttökuseðil þar sem göngufólk safnar stimplum fyrir hverja ferð. Þegar búið verður að fara 3 - 5 gönguleiðir verður dregið úr seðlum og einhverjir þrír heppnir fá útivistarvörur frá Cintamani. Dregið verður eftir síðustu gönguna. Þátttakendur eru beðnir um að muna efti að taka þátttökuseðla með í ferðir.
Gönguferðin er í boði Ferðamálasamtaka Suðurnesja og sjf menningarmiðlunar.

 Nánari upplýsingar um ferðir:    
www.sjfmenningarmidlun.is
sjf@internet.is/gsm. 6918828