AF STAÐ á Reykjanesið gönguhátíð 2011

AF STAÐ á Reykjanesið; gönguhátíð í umdæmi Grindavíkur um verslunarmannahelgina.
Boðið verður upp á  fjórar gönguferðir með leiðsögn frá föstudegi  til mánudags:

Föstudagur 29. júlí: Skógarferð, Mæting við Selskóg kl. 20:00 fyrir neðan fjallið Þorbjörn,  (Fjallað verður um skógrækt í Selskógi  o.fl. fróðlegt,  1-2 tíma stutt ganga, ekkert  þátttökugjald.

Laugardagur 30. júlí: Strandgönguferð, (Krýsuvíkurberg).  Mæting við tóftir Krýsuvíkurkirkju á Krýsuvíkurleið, kl. 11:00 ekið á einkabílum að Selöldu og gengið þaðan að Krýsuvíkurbergi , 3-4 tíma ganga.

Sunnudagur 31. júlí: Seljaferð, (Hraunsel).  Mæting við Ísólfsskála kl. 11:00 sem er 10 km austur af Grindavík á Krýsuvíkurleið. Ekið þaðan á einkabílum að Méltunnuklifi og gengið að Hraunseli, um 4 tíma ganga.

Mánudagur 1. ágúst: Hellaferð (Bálkahellir og Arngrímshellir), Mæting kl. 11:00 við Litlu Eldborg, á Krýsuvíkurleið í átt að Selvogi, 3-4 tíma ganga. Þátttakendur mæti  með ljós og höfuðfat.

Mælt er með að vera í góðum gönguskóm og taka með sér nesti í ferðir. Allir eru á eigin ábyrgð í ferðum.
Þátttökugjald í hverja ferð kr. 1.000, frítt fyrir börn.  Leiðsögumaður, Sigrún Jónsd. Franklín, gsm 6918828. Nánar um ferðir á www.sjfmenningarmidlun.is og  tjaldsvæði, veitingar og aðra þjónustu á www.grindavik.is