AF STAÐ á Reykjanesið

Menningar- og sögutengd gönguferð

Mæting er við Kálfatjarnarkirkju á Vatnsleysuströnd,  sunnudaginn 9. ágúst kl 11. Gengið verður með leiðsögn um Kálfatjarnarsvæðið og hluta af gamalli þjóðleið, Almenningsvegi, er lá áleiðis í Voga.
Til baka verður gengið um heiðina. Svæðið býr yfir ótal mörgum sögum og minjum.
Þátttökugjald er kr. 1000. Frítt fyrir börn undir 12 ára aldri. Vegalengdin er um 6 km og tekur
3 – 4 tíma með stoppum. Gott er að vera í góðum gönguskóm og með nesti.
Gengið í hrauni og grasi. Ferðin kemur í lok Fjölskylduhátíðar í Vogum sjá nánar hér.

Gangan er níunda ferðin af tólf menningar- og sögutengdum gönguferðum um hluta af gömlu þjóðleiðunum á Reykjanesskaganum sem farnar verða með leiðsögn sumarið ´09. Boðið er upp á þátttökuseðil þar sem göngufólk safnar stimplum fyrir hverja ferð. Þegar búið verður að fara 4 - 12 gönguleiðir verður dregið úr seðlum og einhverjir þrír heppnir fá veglega vinninga.
Dregið verður í síðustu göngu. Þátttakendur eru beðnir um að muna eftir að taka þátttökuseðla með í ferðir. Allir eru velkomnir.

Nánari upplýsingar um ferðir
Sigrún Jónsd. Franklín    
www.sjfmenningarmidlun.is
sjf@internet.is/gsm. 6918828