Menningar- og sögutengd gönguferð sunnudaginn 17. ágúst kl. 11 í boði Sveitarfélagsins Garðs í samvinnu við sjf menningarmiðlun.
Gangan hefst við stóra skiltið við innkomuna í Garð, við Garðbraut. Gengið verður að Hólmsbergskirkjugarði. Garðstígur er gömul þjóðleið, um 6,5 km á milli Keflavíkur og Garðs. Svæðið býr yfir minjum, mögnuðum sögum og fróðleik sem Sigrún Jónsd. Franklín mun miðla á leiðinni. Áætlað er að gangan taki ca. 3-4 klst. með stoppum. Gott er að vera með nesti og í góðum skóm. Allir eru á eigin ábyrgð. Rútuferð til baka kr. 500. Frítt fyrir börn.
Gangan er þriðji hluti af sex menningar- og sögutengdum gönguferðum um hluta af gömlu þjóðleiðunum á Reykjanesskaganum sem farnar eru á tímabilinu 1.ágúst – 7. sept. ´08. Boðið er upp á þátttökuseðil þar sem göngufólk safnar stimplum fyrir ferð í hverju sveitarfélagi. Þegar búið verður að fara 3 - 6 ferðir verður dregið úr seðlum og einhverjir þrír heppnir fá góð gönguverðlaun. Dregið verður í sjöttu ferð. Göngufólk er beðið um að muna eftir að taka þátttökuseðla með í ferðir.
Umsjónarmaður gönguverkefnis
AF STAÐ á Reykjanesið
Sigrún Jónsd. Franklín
sjf@internet.is/6918828
www.sjfmenningarmidlun.is