AF STAÐ á Reykjanes

Síðastliðin fimm sumur hefur sjf menningarmiðlun  boðið upp á gönguverkefnið AF STAÐ á Reykjanesið,   menningar- og sögutengdar gönguferðir með leiðsögn um hluta af gömlu þjóðleiðunum á  Reykjanesskaganum. Ferðirnar hafa verið vel sóttar og áhugi fólks mikill á að kynnast náttúru og sögu Reykjanesskagans. Fyrstu ferðir sumarsins verða á sunnudögum frá 1. maí til 29. maí 2011 og byrja  allar kl. 13:00.

Ferðir:    dagsetn:   þjóðleið:              upphafsstaður:              áfangastaður:                   km
 
1. ferð:  1. maí,  Alfaraleið. Straumur, Þorbjarnastaðir – Óttarsstaðaborg.                   7 km
(Mæting er við Straum vestan við álverið í Hafnarfirði).

2. ferð: 8. maí,   Ketilsstígur. Seltún í Krýsuvík, - Arnarvatn - Folaldadalir.                  7 km
(Mæting er við Seltún í Krýsuvík. Ekið er um Krýsuvíkurveg að þjónustuhúsunum við Seltún).

3. ferð:  15. maí, Prestastígur, Hafnavegur, við Kalmannstjörn, – Langhóll –
                                            Haugsvörðugjá – gjá milli heimsálfa.                                      7 km
(Mæting er á bílastæði ofan við fiskeldið miðja vegu milli Hafna og Reykjanessvita. Ekið er um Hafnaveg).

4. ferð: 23. maí,  Skipsstígur. Bláa lónið, bílastæði, – Sjónarhóll – Rauðimelur.            12 km
(Mæting er á bílastæðinu við Bláa lónið við skiltin þar sem rúturnar stoppa).

5. ferð: 29. maí,  Almenningsvegur. Kálfatjörn, – Arnarhóll - Árnavarða.             7 km
(Mæting er við Kálfatjarnarkirkju). Ekið er um Vatnsleysustrandarveg.)

Ferðirnar taka yfirleitt um 3-4 tíma með fræðslustoppum. Gengið er að mestu í flatlendi og hrauni. Gott er að vera með nesti og  í góðum skóm. Allir eru á eigin ábyrgð í ferðum. Göngufólk fær stimpil fyrir hverja ferð á þátttökuseðil. Eftir 3 -5 gönguferðir er hægt að skila seðli og vera með í potti sem dregið verður úr í síðustu göngunni. Þrír  útivistarvinningar eru í boði. Mæting í ferð er við upphafsstað göngu. Þátttökugjald í ferð er kr. 1.000. Frítt fyrir börn. Nánari upplýsingar um ferðir eða breytingar á ferðum verða á www.sjfmenningarmidlun.is

Ferðamálasamtök Suðurnesja hafa staðið fyrir því að láta gefa út nýtt göngukort með gömlu þjóðleiðunum á Reykjanesskaga auk göngubæklinga um; Garðstíg, Sandgerðisveg,  Árnastíg og Skipstíg. Í sumar stendur jafnframt til að merkja sérstaklega upphafsstaði gönguleiða.

Styrktar- og þátttökuaðilar gönguverkefnisins AF STAÐ á Reykjanesið: Ferðamálasamtök Suðurnesja, Markaðsstofa Suðurnesja, FERLIR og sjf menningarmiðlun.

Sigrún Jónsd. Franklín, menningarmiðlari, leiðsögumaður og kennari, sjf@internet.is   gsm 6918828
facebook: sjf menningarmiðlun.


Gosgígur við Prestastíg