Æfinga- og keppnissvæði Þróttar formlega tekið í notkun

Síðastliðinn föstudag var stórglæsilegt æfinga- og keppnissvæði tekið formlega í notkun í Vogunum. Þetta glæsilega æfingasvæði rúmar tvo knattspyrnuvelli í fullri stærð. Vígslan var hluti af dagskrá Fjölskyldudaga í Vogum og komu þeir Atli Eðvaldsson fyrrverandi landsliðsþjálfari og Sigurður Ragnar landsliðsþjálfari kvenna fyrir hönd KSÍ til þess að vera viðstaddir vígsluna. Færðu þeir félaginu bolta og vesti að gjöf.

Alexandra Líf Ingþórsdóttir iðkandi hjá Þrótti fékk þann heiður að klippa á borðann. Í framhaldi af vígslunni tóku Þróttarar á móti liði Grundafjarðar í æsispennandi leik sem endaði 4-2 heimamönnum í vil. Markaskorarar heimamanna voru Reynir Þór Valsson og Dalibor Laziz með tvö mörk hvor.

Mikill fjöldi fólks lagði leið sína á völlinn og var mikil stemmning á meðal bæjarbúa. Má með sanni segja að bjart sé framundan enda nýja keppnis- og æfingasvæðið algjör bylting fyrir knattspyrnu iðkendur í Vogum.

Einnig fagnar félagið 80 ára afmæli á þessu ári og er fyrirhuguð afmælishátíð seinna á árinu.

 

 

Atli Eðvaldsson, Sigurður Ragnar, Alexandra Líf Ingþórsdóttir og Tinna Hallgrímsdóttir framkvæmdastjóri Þróttar.

 

Brekkan full af stuðningsmönnum

 

Jón Kristjánsson þjálfari að segja sínum mönnum til

 

Nokkrar skvísur málaðar í Þróttaralitnum

 

Hægt er að sjá fleiri myndir frá leiknum hér