Æfði með Plymouth

Ungur og efnilegur piltur, Haukur Harðarson, æfði í síðustu viku með unglingaliði enska félagsins Plymouth. Haukur æfir og leikur með liði Njarðvíkur og fór hann ásamt einum félaga sínum úr liðinu, Kristjóni Hjaltested til æfinga ytra. Var þetta mikil upplifun og viðurkenning fyrir hæfileika piltanna, að fá að æfa með enska félaginu. Einn íslenskur leikmaður, Bjarni Guðjónsson, leikur með aðalliðinu.