Aðalfundur UMFÞ

Aðalfundur Ungmennafélagsins Þróttar verður fimmtudaginn 25. febrúar í Álfagerði kl 20:00.

Dagskrá fundarins er eftirfarandi:
1)      Fundarsetning
2)      Kosning fundarstjóra og fundarritara
3)      Fundargerð síðasta aðalfundar lögð fram
4)      Skýrsla aðalstjórnar lögð fram um starfsemi og framkvæmdir á liðnu ári
5)      Endurskoðaðir reikningar liðins árs lagðir fram til umræðu og samþykktar
6)      Inntaka nýrra félaga og úrsagnir
7)      Lagabreytingar
8)      Kosning formanns
9)      Kosning stjórnarmanna
10)  Kosning varamanns
11)  Kosning endurskoðenda
12)  Kosning nefnda
13)  Ákveðið félagsgjald og ævifélagsgjald
14)  Önnur mál

Við hvetjum alla þá sem hafa áhuga á að starfa í stjórn að senda póst á throttur@throttur.net
Kveðja,
Stjórn Ungmennafélagsins Þróttar