Aðalfundur Þróttar

Aðalfundur Ungmennafélagsins Þróttar verður haldinn fimmtudaginn 23. febrúar í Álfagerði kl.20:00.
Dagskrá fundarins er eftirfarandi:
-Formaður félagsins setur fundinn
-Kosnir eru fundarstjóri og fundarritari
-Fundargerð síðasta aðalfundar lesin upp
-Skýrsla stjórnar
-Ársreikningur 2016 lagður fram til samþykktar
-Kosning formanns og stjórnarmeðlima
-Önnur mál
Látum íþróttamál í Sveitarfélaginu Vogum okkur varða. Sýnum samstöðu og höldum áfram að efla gott starf, það getum við gert í sameiningu. Við hvetjum alla þá sem hafa áhuga á að starfa í stjórn að senda póst á throttur@throttur.net Allir félagsmenn sem greitt hafa félagsgjald fyrir árið 2016 eru með atkvæðisrétt á fundinum.

Kveðja, UMFÞ.