Á ég að gæta bróður míns ?

Opinn fundur um öryggi og forvarnir í Sveitarfélaginu Vogum verður haldinn í Tjarnarsal Stóru-Vogaskóla mánudaginn 30. nóvember 2009 kl. 20:00

Fulltrúar Sv. Voga, Lögreglunnar og frá Forvarnarhúsi Sjóvá munu fjalla um öryggi og forvarnir í Sv. Vogum.

Kynning verður á nágrannavörslu með það að markmiði að hún geti komist á í Sveitarfélaginu Vogum.

Íbúar í sveitarfélaginu eru hvattir til að fjölmenna og taka þátt í fundi um málefni sem snertir alla.

Það verður heitt kaffi á könnunni og ráðgert er að fundinum verði lokið kl. 22:00.