25 ára afmæli Heilsuleikskólans Suðurvalla

Sunnudaginn 9. október eru liðin 25 ár frá opnun Heilsuleikskólans Suðurvalla.  Af því tilefni verður opið hús fyrir gesti og gangandi föstudaginn 7. október kl. 14:30-16:00.
Boðið verður upp á léttar veitingar, gamlar ljósmyndir verða til sýnis og verk barnanna. Kór leikskólans mun flytja nokkur lög kl. 15:30.

Hlökkum til að sjá ykkur, starfsfólk og nemendur Suðurvalla.