20 ára afmæli íþróttamiðstöðvar laugardaginn 5. október

Kæru íbúar
Um þessar mundir eru 20 ár síðan íþróttamiðstöð Voga var formlega tekin í notkun. Af því tilefni ætlum við að gera okkur glaðan dag næsta laugardag, þann 5. október frá kl. 10:00 – 16:00. Frítt verður í sund allan daginn og gestum verður boðið upp á djús, kaffi og gómsæta afmælistertu. Hvetjum alla til að kíkja við í íþróttamiðstöðinni og fagna þessum tímamótum með okkur.
Hlökkum til að sjá ykkur, kær kveðja,
starfsfólk íþróttamiðstöðvar