17. júní gleði Þróttar

Ungmennafélagið Þróttur ætlar að halda 17. júní gleði í Aragerði og mun dagskráin byrja kl.13:00  og verða eitthvað fram eftir degi.
Á staðnum verður 17. júní sjoppa með blöðrum, gosi og nammi. Andlitsmálning og fullt af leikjum í boði fyrir börnin.
Hinir fullorðnu munu keppa í Sjómanni kl.14:00, Maggi júdó ætlar að dæma. Hver verður krýndur sjómannsmeistari?
Lions verður með kaffi og vöfflur fyrir gesti og ekki má gleyma tælenska matartjaldinu góða!


Svo það verður ekkert nema gleði, gleði, gleði
sunnudaginn 17. júní í Aragerði kl. 13:00 og fram eftir degi !