1000. íbúinn

Íbúum í Vatnsleysustrandarhreppi hefur fjölgað ört á síðustu árum í kjölfar átaksins "Vogar færast í vöxt". Samkvæmt íbúaskrá 1. desember s.l. varð 1000. íbúinn í sveitarfélaginu,  Alexandra Líf Ingþórsdóttir Austurgötu 2  fædd 10. nóvember 2005. Hreppsnefnd hefur ákveðið að færa hinum nýja íbúa glaðning í tilefni  þessara tímamóta.