Upplýsingafundur Almannavarna með íbúum í tengslum við jarðhræringar

Almannavarnarnefnd Suðurnesja utan Grindavíkur í samstarfi við Sveitarfélagið Voga boðar til uppl‎‎ýsingafundar með íbúum Voga í tengslum við jarðhræringar á svæðinu. Á fundinum munu m.a. fulltrúar Veðurstofunnar og Umhverfisstofnunar vera með erindi og sitja fyrir svörum.

Fundurinn verður haldinn í Tjarnarsal, Tjarnargötu 2, Vogum á fimmtudaginn næstkomandi, 26. september og hefst klukkan 20:00. Fundinum verður jafnframt streymt og verða upplýsingar um hvar má nálgast streymi sendar út í vikunni.

Við vonumst til að sjá sem flesta bæjarbúa.