Sveitarfélagið Vogar auglýsir laust til umsóknar 50% starf matráðs og læknamótttöku í Álfagerði, þjónustumiðstöð 60 ára og eldri. Um framtíðarstarf er að ræða.
Verksvið
Starfið felst í umsjón með eldhúsi, móttöku og framreiðslu hádegisverðar kl. 11:30 alla virka daga auk frágangs. Starfið felur einnig í sér umsjón með veitingum á tilfallandi viðburðum í félagsstarfi eldri borgara seinnipart og á kvöldin. Þegar salur er í útleigu er starfsmaður einnig umsjónarmaður hússins og er það greitt aukalega.
Að auki fer fram læknamóttaka á þriðjudagsmorgnum í Álfagerði og ber viðkomandi ábyrgð á því að taka á móti skjólstæðingum og innheimta greiðslur.
Hæfniskröfur
Reynsla af ofangreindum verkefnum sem nýst getur í starfi.
Rík þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum.
Frumkvæði, metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Suðurnesja.
Um 50% starf er að ræða og er vinnutími sem hér segir;
Mánudaga, fimmtudaga og föstudaga kl. 10-13
Þriðjudaga (læknamóttaka) kl. 9-13
Miðvikudaga kl. 10-17
Starfið er laust , og því kostur ef viðkomandi getur hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar veita Guðmundur Stefán Gunnarsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi og Daníel Arason, forstöðumaður stjórnsýslu í síma 440-6200, einnig má senda fyrirspurn á netfangið gudmundurs@vogar.is
Umsóknarfrestur er til og með 20. mars2021. Umsóknum skal skila á netfangið skrifstofa@vogar.is