Malbikunarframkvæmdir á Reykjanesbraut 27. maí

Mánudaginn 27.maí er stefnt á að fræsa og malbika hægri akrein á Reykjanesbraut, á milli gatnamóta við Voagaveg og Grindavíkurveg. Kaflinn er 1000 m langur og verður þrengt um eina akrein líkt og sjá má á meðfylgjandi mynd. Rampur af Reykjanesbraut inn á Grindavíkurveg verður lokaður, hjáleið er um mislæg gatnamót við innri-Njarðvík.

Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 5:00 til kl. 21:00.

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.