Lestrarfélagið Baldur kynnir
Aukin þjónusta á bókasafninu, kynning og sérstök opnun
laugardaginn 9. mars kl. 10-12.
- Opnunartími framlengdur – nú er einnig opið á laugardögum kl. 10-12.
- Morgunblaðið í áskrift – hægt að fletta blaðinu eða njóta netáskriftar sem býður upp á fjölbreytt tækifæri, þar á meðal að hlusta á Hljóðmoggann.
- Heimildin í áskrift - hægt að fletta blaðinu eða njóta netáskriftar sem býður upp á fjölbreytt tækifæri.
- Dagbækur frá Keili til sýnis og afnota á safninu – dagbækur frá göngugörpum sem hafa farið upp á Keili. Helgi Guðmundsson afhenti okkur bækurnar til varðveislu.
- Borðspil og spilafélagar.
- Síðast en ekki síst ætlum við að bjóða upp á kaffi sem hér eftir verður í boði ókeypis fyrir skírteinishafa bókasafnsins.
Bókasafnsskírteini er gjaldfrjálst fyrir yngri en 18 ára og 67 ára og eldri. Árgjald fyrir einstaklinga 18-66 ára er 2500 ISK (tökum eingöngu á móti greiðslum í reiðufé).
ALMENNUR OPNUNARTÍMI BÓKASAFNSINS
Mánudaga 8-13
Þriðjudaga 8-18
Miðvikudaga 8-18
Fimmtudaga 8-18
Föstudaga 8-13
Laugardaga 10-12
Bókasafnið í Vogum er bæði skóla- og almenningsbókasafn og staðsett við Tjarnargötu 2, tjarnarmegin í Stóru-Vogaskóla.
Verið velkomin!