Lausar stöður í Stóru-Vogaskóla
Vegna ört stækkandi sveitarfélags og fjölgunar nemenda í Stóru-Vogaskóla, í Vogum við Vatnsleysuströnd, vantar okkur kennara og starfsfólk í eftirfarandi stöður:
Stóru-Vogaskóli er 210 barna grunnskóli þar sem skólastarf er í senn metnaðarfullt og faglegt. Einkunnarorð skólans eru virðing, vinátta og velgengni sem endurspeglast í daglegu starfi í skólanum. Í skólanum er góður starfsandi og hefur skólinn á að skipa öflugu og áhugasömu starfsfólki.
Skólinn er staðsettur í einstöku umhverfi í nálægð við fjölbreytta náttúru.
Stóru-Vogaskóli er Grænfánaskóli.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags grunnskólakennara.
Umsóknum skal fylgja skrá yfir menntun og starfsferil, afrit af leyfisbréfi og kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar með rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið og upplýsingar um umsagnaraðila.
Umsóknarfrestur er til og með 17. maí. Umsóknir skulu berast á netfangið hilmar@vogar.is
Nánari upplýsingar veitir Hilmar Egill Sveinbjörnsson skólastjóri í síma 440-6250.