Íþróttamaður ársins og Hvatningarverðlaun Sveitarfélagsins Voga 2024

Frá vinstri. Pétur Már Ólafsson, Marteinn Ægisson tók við tilnefningu Magnúsar Más Traustasonar, Jóh…
Frá vinstri. Pétur Már Ólafsson, Marteinn Ægisson tók við tilnefningu Magnúsar Más Traustasonar, Jóhann Þór Arnarsson, Logi Friðriksson tók við tilnefningu Valdimars Kristins Árnasonar.

Mánudaginn 6. janúar 2025 fór fram verðlaunaafhending fyrir Íþróttamann ársins 2024 og Hvatningarverðlaun Sveitarfélagsins Voga 2024.

Athöfnin var haldin í Tjarnarsal til að heiðra framúrskarandi árangur ungra og efnilegra íþróttamanna sem og bestu íþróttamanna sveitarfélagsins.

Guðrún P. Ólafsdóttir, bæjarstjóri Sveitarfélagsins Voga, bauð gesti velkomna og flutti hlýleg ávarpsorð, þar sem hún lagði áherslu á mikilvægi íþrótta- og félagsstarfs sveitarfélaginu.
Guðmann Rúnar Lúðvíksson, formaður Frístunda- og menninganefndar, afhenti verðlaunin Íþróttamaður ársins og Hvatningaverðlaun sem og viðurkenningar til þeirra sem tilnefndir voru til Íþróttamanns ársins 2024. Athöfnin var glæsileg.

Í tilefni viðburðarins var boðið upp á fallegt tónlistaratriði sem var flutt af tríóinu, Magdalenu Högnadóttur, Birnu Rán Hilmarsdóttur og Bent Marínósyni. Flutningurinn gerði gæfumuninn enda upprennandi tónlistarmenn á ferðinni sem gerðu athöfnina enn eftirminnilegri.

Tilnefndir til Íþróttamanns ársins 2024
Tilnefndir voru :
Valdimar Kristinn Árnason, rallykrossari sem varð bæði Íslands og bikarmeistari í unglingaflokki og eini íslenski keppandinn fyrr og síðar sem nær þeim árangri.

Pétur Már Ólafsson, afburðarskytta sem vann Íslandsmeistaratitil í BR50 Light Rifle flokki og setti Íslandsmet á heimsmeistaramóti í Hunter Class.

Jóhann Þór Arnarsson, knattspyrnumaður með Þrótti Vogum, sem skaraði fram úr sem framherji markaskorari og með stóru framlagi til liðsins í 2. deild karla.

Magnús Már Traustason, körfuknattleiksmaður með Þrótti Vogum, sem leiddi liðið til sigurs í 2. deild og var þekktur fyrir framúrskarandi skotnýtingu og leiðtogahæfileika.

Íþróttamaður ársins 2024
Titilinn Íþróttamaður ársins 2024 hlaut Valdimar Kristinn Árnason, sem átti glæsilegt keppnisár í rallýkrossi. Eins og fyrr segir varð hann bæði Íslandsmeistari og bikarmeistari í unglingaflokki, sem er fjölmennasti og mest krefjandi keppnisflokkurinn. Með frábærri aksturstækni, útsjónarsemi og staðfestu vakti Valdimar athygli, auk þess sem hann hannaði og smíðaði keppnisbíl sinn sjálfur. Árangur hans sýndi fram á styrkleika hans og hæfileika, og með þeim hefur hann orðið mikilvæg fyrirmynd fyrir ungt fólk í íþróttinni.

Hvatningarverðlaun 2024
Hvatningarverðlaunin voru veitt tveimur efnilegum einstaklingum sem skarað hafa fram úr fyrir árangur,eldmóð og framlag til íþróttar sinnar:
Elías Ármann Gunnarsson, sem hefur unnið einstakt starf í rafíþróttum og sjálfboðaliðastarfi. Elías hefur verið fyrirmyndar liðsfélagi, auk þess að taka virkan þátt í starfi Ungmennafélagsins Þróttar og ungliðahreyfingu Björgunarsveitarinnar Skyggnis.
Dilanas Sketrys, mjög efnilegur körfuknattleiksmaður með Aftureldingu. Hann var valinn í U15 landslið karla og lykilmaður í fyrsta Íslandsmeistaratitli 9. flokks Aftureldingar. Hann var einnig valinn mikilvægasti leikmaður (MVP) úrslitakeppninnar.

Viðburðurinn heppnaðist mjög vel og endurspeglaði mikilvægi þess að heiðra afrek, eldmóð og samfélagslega þátttöku. Viðburðurinn var ekki aðeins til þess að fagna árangri síðasta árs heldur til að blása íþróttamönnum okkar metnað í brjóst í byrjun á nýju og spennandi íþróttaári.

 

 

Frá vinstri. Pétur Már Ólafsson, Marteinn Ægisson tók við tilnefningu Magnúsar Más Traustasonar,

Jóhann Þór Arnarsson, Logi Friðriksson tók við tilnefningu Valdimars Kristins Árnasonar.