Höfuðborgarbúum boðið í sund í heitavatnsleysi

Við fetum í fótspor nágranna okkar í Reykjanesbæ og bjóðum höfuborgarbúum sem verða heitavatnslausir í vikunni, endurgjaldslaust í sund frá og með morgundeginum og á meðan að heitavatnslaust er.

Þakklæti er okkur enn ofarlega í huga fyrir vinarþelið sem sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu sýndu í verki þegar heitavatnslaust var í vetur á Suðurnesjum. Sundlaugin er staðsett í íþróttamiðstöð sveitarfélagsins að Hafnargötu 17. Stutt er fyrir höfuðborgarbúa að skjótast til Voga og ekki nema um 20 mínútna akstur frá Hafnarfirði.

Verið hjartanlega velkomin í vinalegu sundlaugina okkar.