Félagslegar íbúðir

Sveitarfélagið Vogar auglýsir lausar til umsóknar tvær nýjar íbúðir í Álfagerði.

Í Álfagerði eru alls þrettán íbúðir og samtengd þjónustumiðstöð fyrir eldri borgara. Íbúðirnar eru hvor um sig 46 m2 að stærð.

Umsækjendur skulu vera með skráð lögheimili í Sveitarfélaginu Vogum og uppfylla skilyrði um eigna- og tekjumörk í samræmi við reglugerð um lánveitingar til leiguíbúða nr. 873/2001.

Skilyrðin eru eftirfarandi:

• Tekjur fyrir einstakling allt að 2.686.000 kr.
• Tekjur fyrir hjón og sambúðarfólk allt að 3.760.000 kr.
• Eignamörk allt að 2.899.000 kr.

Nánari upplýsingar í síma 424-6660.
Umsóknum skal skilað á skrifstofu Sveitarfélagsins Voga fyrir 1. júní.