Dagskrá bæjarstjórnarfundar

221. fundur bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Voga verður haldinn í fundarsal bæjarstjórnar Iðndal 2, 29. maí 2024 og hefst kl. 17:00.

Hér er hægt að nálgast fundinn í beinni útsendingu

Dagskrá:

Almenn mál

1. Farsældarráð barna - samstarfssamningur - 2405012

Tekið fyrir 16, mál af dagskrá 401. fundar bæjarráðs sem haldinn var 22.05.2024, Farsældarráð barna - samstarfssamningur

Á fundi stjórnar S.S.S. nr. 801 sem haldinn var þann 15.05.2024 var innleiðing svæðisbundinna farsældarráða á dagskrá. Eftirfarandi var fært til bókar:

"Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur verið að vinna að útfærslu á starfsemi farsældarráða barna, samkvæmt 5 gr. farsældarlaga. Hugmyndin er að stofnað verði farsældarráð í hverjum landshluta.

Í tengslum við þetta hefur ráðuneytið lýst yfir vilja sínum til þess að gerður verði viðaukasamningur við sóknaráætlanir landshluta um að landshlutasamtökin fái stuðning til þess að ráða verkefnastjóra í 2 ár til þess að útfæra starfsemi farsældarráða.

Samningurinn felur ekki í sér fjárhagslegar kvaðir fyrir sveitarfélögin en er fyrst og fremst yfirlýsing um að þau vilji eiga með sér samstarf um útfærslu á Farsældarráði Suðurnesja og skoðuð verði tækifæri til samstarfs í þessu verkefni. M.a. hefur mikið samstarf átt sér stað í gegnum Velferðarnet Suðurnesja og mætti skoða það vel að samtvinna þessi tvö verkefni.

Framkvæmdastjóra S.S.S. falið að senda sveitarstjórnum á Suðurnesjum erindið frá ráðuneytinu ásamt gögnum til umsagnar"

Afgreiðsla bæjarráðs:

Bæjarráð tekur undir bókun stjórnar SSS og leggur til við bæjarstjórn að sveitarfélagið taki þátt í verkefninu á ofangreindum forsendum og með þeim fyrirvara að landshlutasamtökin fái stuðning til að ráð verkefnastjóra til að sinna verkefninu.

Fundargerðir til kynningar

2. Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga - 401 - 2405005F
3. Frístunda- og menningarnefnd Sveitarfélagsins Voga - 114 - 2405002F
4. Umhverfisnefnd Sveitarfélagsins Voga - 22 - 2405004F
5. Skipulagsnefnd Sveitarfélagsins Voga - 60 - 2405003F