Dagskrá bæjarstjórnarfundar

218. fundur bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Voga verður haldinn í fundarsal bæjarstjórnar Iðndal 2, 27. mars 2024 og hefst kl. 18:00.

Hér er hægt að horfa á fundinn í beinni útsendingu

Dagskrá:

Almenn mál

  1. 2312018 - Endurskoðun samþykkta um stjórn Sveitarfélagsins Voga

Tekið fyrir 7. mál af dagskrá 391. fundar bæjarráðs - Endurskoðun samþykkta um stjórn Sveitarfélagsins Voga.

Lagt fram minnisblað bæjarstjóra um endurskoðun samþykkta um stjórn sveitarfélagsins.

Afgreiðsla bæjarráðs

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að bæjarráði verði falið það verkefni að endurskoða núgildandi samþykkt um stjórn Sveitarfélagsins Voga nr.925/2013, með síðari breytingum, með hliðsjón af þeim breytingum sem orðið hafa á stjórn og stjórnsýslu sveitarfélagsins og gildandi fyrirmynd ráðuneytis sveitarstjórnarmála nr.1180/2021. Bæjarráði verði falið það verkefni ásamt bæjarstjóra að vinna drög að nýrri samþykkt og stefnt skuli að því að síðari umræða um tillöguna í Bæjarstjórn fari fram fyrir lok júní næstkomandi

  2. 2403003 - Viðaukar 2024

Tekin fyrir 2. liður af dagskrá 395. fundar bæjarráðs: viðaukar 2024

Lagður fram viðauki nr. 1 2024

Í samræmi við samþykkt 394. fundar bæjarráðs þann 21. febrúar sl. varðandi beiðni Ungmennafélagsins Þróttar um rekstarframlag vegna neikvæðrar niðurstöðu á rekstri íþróttamiðstöðvar 2023, er lagt til að samþykktur verði kostnaður að fjárhæð 2.471.844 krónur sem mætt er með lækkun útistandandi kröfu á Ungmennafélagið Þrótt vegna fyrirframgreiðslu styrkjar 2024.

Í þjónustusamningi við Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) er kveðið á um afnot af húsnæði fyrir heilsugæslusel í hluta af húsnæði bæjarins að Iðndal 2. Fjárfesting í breytingum og endurbótum var samþykkt í viðauka við fjárhagsáætlun síðasta árs en verkefnið frestaðist. Áætlaður kostnaður nemur nú 25 m.kr. Lagt er til að ráðist verði í verkefnið og að fjárfestingu sé mætt með lækkun á handbæru fé.

Í fjárhagsáætlun 2024 nemur fjárfesting vegna færanlegrar kennslustofu við Heilsuleikskólann Suðurvelli 80 m.kr. Endurmetinn kostnaður vegna verkefnisins nemur nú 35 m.kr. Því er áætlað handbært fé styrkist um 45 m.kr.

Afgreiðsla bæjarráðs:

Bæjarráð samþykkir samhljóða framlagðan viðauka og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.

  3. 2403041 - Endurvottun jafnlaunakerfis 2024

Tekin fyrir 7. liður af dagskrá 396. fundar bæjarráðs: Endurvottun jafnlaunakerfis 2024

Lögð fram drög að uppfærðri jafnlaunastefnu sveitarfélagsins og kynning á niðurstöðu launagreiningar.

Afgreiðsla bæjarráðs:

Bæjarráð samþykkir framlögð drögð að uppfærðri jafnlaunastefnu fyrir sveitarfélagið og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.

  4. 2403046 - Samþykkt um meðhöndlun úrgangs

Lögð fram drög að samþykkt fyrir meðhöndlun úrgangs í sveitarfélaginu Vogum.

Fundargerðir til kynningar

  5. 2403001F - Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga - 395

  6. 2403005F - Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga - 396

  7. 2403004F - Fræðslunefnd Sveitarfélagsins Voga - 108

  8. 2403006F - Frístunda- og menningarnefnd Sveitarfélagsins Voga - 112

 

 

25.03.2024

Gunnar Axel Axelsson, bæjarstjóri.