Afsláttur af leikskólagjöldum vegna tekna

Foreldrar eru minntir á að sækja þarf um tekjutengdan afslátt af leikskólagjaldi fyrir 1. september 2024

Sótt er um í gegnum íbúagátt á heimasíðu Sveitarfélagsins Voga https://vogar.ibuagatt.is/login.aspx

Afslátturinn tekur gildi í mánuðinum eftir að umsókn berst og gildir einungis eitt skólaár í senn, þ.e. frá 1. september 2024 -31. ágúst 2025.

Afsláttur er veittur af almennu dvalargjaldi, ekki fæði, í samræmi við tekjuviðmið sem Sveitarfélagið Vogar setur.

TEKJUVIÐMIÐ:
Brúttótekjur á ári :
Einstaklingur:
0 til 5.214.980 kr. 40%
5.214.981 kr. til 6.256.589 kr. 20%

Fólk í sambúð:
0 til 7.299.505 kr.. 40%
7.299.506 kr. til 8.760.580 kr. 20%