Fundur bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Voga verður haldinn í fundarsal bæjarstjórnar Iðndal 2, 15. maí 2023 og hefst kl. 18:00.
Hér er hægt að horfa á fundinn í beinni útsendingu
Almenn mál
Tekið fyrir 4. mál úr fundargerð 377. fundar bæjarráðs sme haldinn var 24.05.2023: Samningur um fræðsluþjónustu
Afgreiðsla bæjarráðs: Samþykkt samhljóða að fela bæjarstjóra að undirrita samninginn fyrir hönd Sveitarfélagsins Voga.
Tekið fyrir 6. mál úr fundargerð 377. fundar bæjarráðs sem haldinn var 24.05.2023: Ráðning sviðsstjóra.
Afgreiðsla bæjarráðs:
Í samræmi við 50. gr. samþykkta Sveitarfélagsins Voga leggur bæjarstjóri til við bæjarráð að Guðrúnu P. Ólafsdóttur sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs, sem jafnframt gegnir hlutverki staðgengils bæjarstjóra, sé veitt prókúra frá og með 1. júní næstkomandi.
Afgreiðsla bæjarráðs: Samþykkt samhljóða, vísað til staðfestingar í bæjarstjórn.
Fundargerðir til staðfestingar
Fundargerð 376. fundar bæjarráðs er lögð fram til kynningar á 208. fundi bæjarstjórnar
Fundargerð 377. fundar bæjarráðs er lögð fram til kynningar á 208. fundi bæjarstjórnar
Fundargerð 82. afgreiðslufundar ubyggingarfulltrúa er lögð fram til kynningar á 208. fundi bæjarstjórnar
Fundargerð 50. fundar skipulagsnefndar er lögð fram til kynningar á 208. fundi bæjarstjórnar
Fundargerð 107. fundar frístunda- og menningarnefndar er lögð fram til kynningar á 208. fundi bæjarstjórnar
Fundargerð 18. fundar umhverfisnefndar lögð fram til kynningar á 208. fundi bæjarstjórnar
30.05.2023
Gunnar Axel Axelsson, bæjarstjóri.