17. júní verður haldin hátíðlegur í Vogunum.
Það verður eitthvað fyrir alla og búið er að bóka gott veður fyrir daginn.
Dagskráin er eftirfarandi með fyrirvara um breytingar:
14:00-16:00
Menningarverðlaun Sveitarfélagsins, Viðurkenningar veittar fyrir námsárangur, vöfflukaffi Kvenfélagsins Fjólu, hoppukastalar og kajakar á tjörninni
15:00-16:00
Vogahestar teyma undir börnunum, Glímusýning, leikir (ef veður leyfir) og "mikilvæg mistök" verða gerð af sirkus Ananas.