4. fundur ársins 2006 í skipulags- og byggingarnefnd Sveitarfélagsins Voga
haldinn þriðjudaginn, 28. mars kl. 18.00 að Iðndal 2, Vogum.
Þórður Guðmundsson, formaður, Jón Ingi Baldvinsson, Gísli Stefánsson, Gunnar
Helgason, Jón Dofri Baldursson og Sigurður H. Valtýsson skipulags og
byggingarfulltrúi, sem jafnframt ritar fundargerð.
1. mál Skipulagsmál, fulltrúar Landslags ehf. þeir Þráinn Hauksson og Ómar
Ívarsson , kynna stöðu mála við skipulagsvinnu.
Kynnt voru drög að deiliskipulagi “Grænuborgar-hverfis”, sem er norðan
núverandi byggðar. Gert er ráð fyrir 1 hæðar par-, rað- og einbýlishúsum ásamt
litlum fjölbýlishúsum á 2-4 hæðum. Í hverfinu er gert fyrir um 53 íbúðum í
einbýlishúsum, 54 íbúðum í raðhúsum, 8 íbúðum í parhúsum, 24 í keðjuhúsum og
96 i fjölbýlishúsum. Heildarfjöldi íbúða er áætlaður allt að 250 í 1. áfanga.
Umræður urðu um götubreiddir og snúningssvæði í götuendum, frárennslismál
hverfisins ásamt svæði fyrir nýjan skóla. Kynnt voru drög að
aðalskipulagsbreytingu vegna “Grænaborgar-hverfis”, rædd var tenging
skólasvæða við íþróttasvæðið og breytt lega Vatnsleysustrandarvegar.
Þeim Þráni og Ómari þökkuð greinargóð kynning.
2. mál Trésmiðja Snorra Hjaltasonar ehf sækir um byggingarleyfi fyrir tveimur
fjölbýlishúsum á lóðinni Aragerði 2-4, skv. teikningum Steinars Sigurðssonar,
arkitekts.
Þar sem ekki liggur fyrir deiliskipulag af svæðinu skal fara fram grenndarkynning
áður en byggingarnefnd afgreiðir umsóknina, sbr. 7. mgr. 43. gr. laga nr. 73/1997
Kynna skal umsóknina fyrir eigendum Aragerðis 6, 8,10, Vogagerðis 1, 3, 5,
Hafnargötu 20.
Byggingarnefnd bókar að gera þurfi ráð fyrir fjórum bílastæðum fyrir fatlaða á
lóðinni sbr. gr. 64.4 í byggingarreglugerð.
Jón Ingi Baldvinsson vék af fundi kl. 19.45.
3. mál Oktavía Ragnarsdóttir sækir um byggingarleyfi fyrir einbýlishús að
Akurgerði 20, skv. teikningum frá Verkfræðistofu Suðurnesja.
Samþykkt með fyrirvara um samþykki eldvarnareftirlits, samræmist lögum
nr.73/1997.
4. mál Margrét Salóme Sigurðardóttir og Vignir Friðbjörnsson sækja um að fá
leyfi fyrir hárgreiðslustofu í bílskúr að Miðdal 2 og breyta framhlið bílskúrs
þannig að í stað bílskúrshurðar verði gluggar sbr. hjálagða tillögu að breytingu.
Fyrir liggur samþykki nágranna.
Samþykkt, samræmist lögum nr.73/1997.
5. mál Sigurjón Jónsson og Kolbrún Sjöfn Indriðadóttir sækja um leyfi fyrir
gluggabreytingu á vesturgafli að Heiðargerði 16. Breytingin felst í því að
núverandi opnanleg fög, láréttir tréhlerar upp undir lofti, verða þéttir og skrúfaðir
fastir og nýjir lóðréttir póstar settir í glugga og opnanleg fög, sbr. meðfylgjandi
teikningu.
Samþykkt, samræmist lögum nr.73/1997.
6. mál Trésmiðja Snorra Hjaltasonar ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir
þjónustuhúsi og vernduðum íbúðum fyrir aldraða á lóðinni Akurgerði 25, skv.
teikningum Guðrúnar Jónsdóttur, arkitekts.
Samþykkt með fyrirvara um samþykki eldvarnareftirlits og heilbrigðiseftirlits,
samræmist lögum nr.73/1997.
7. mál Trésmiðja Snorra Hjaltasonar ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir parhúsi
fyrir aldraða á lóðinni Akurgerði 17-19 skv. teikningum Guðrúnar Jónsdóttur,
arkitekts.
Samþykkt með fyrirvara um samþykki eldvarnareftirlits, samræmist lögum
nr.73/1997.
8. mál Trésmiðja Snorra Hjaltasonar ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir parhúsi
fyrir aldraða á lóðinni Akurgerði 21-23 skv. teikningum Guðrúnar Jónsdóttur,
arkitekts.
Samþykkt með fyrirvara um samþykki eldvarnareftirlits, samræmist lögum
nr.73/1997.
9. mál Trésmiðja Snorra Hjaltasonar ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir parhúsi
fyrir aldraða á lóðinni Vogagerði 32-34 skv. teikningum Guðrúnar Jónsdóttur,
arkitekts.
Samþykkt með fyrirvara um samþykki eldvarnareftirlits, samræmist lögum
nr.73/1997.
Fleira ekki rætt fundi slitið kl 20.30.