Frístunda- og menningarnefnd Sveitarfélagsins Voga
79. fundur
02. maí 2019 kl. 17:45 - 19:30 á bæjarskrifstofu
Nefndarmenn
Friðrik V. Árnasonformaður
Guðmundur Kristinn Sveinssonvaraformaður
Sindri Jens Freyssonaðalmaður
Guðrún Kristín Ragnarsdóttiraðalmaður
Tinna Hallgrímsaðalmaður
Starfsmenn
Daníel Arasonembættismaður
Matthías Freyr Matthíassonembættismaður
Fundargerð ritaði:Daníel Arasonmenningarfulltrúi
Dagskrá
1.Hönnun og prentun upplýsingabæklings fyrir sveitarfélagið
1902069
Útlitshönnun bæklings lögð fyrir nefndina. Hilmar Egill Sveinbjörnsson hönnuður mætir á fundinn.
Nefndin viðraði ýmsar hugmyndir og voru þær ræddar. Hilmar mun halda áfram vinnu við bæklinginn í samráði við menningarfulltrúa og stefnt er að útgáfu bæklingsins í maí.
2.Menningarverðlaun Sveitarfélagsins Voga.
1802033
Mál án gagna. Menningarfulltrúi fer yfir framkvæmd menningarverðlauna sem afhent voru sumardaginn fyrsta, 25. apríl 2019.
Rætt um framkvæmd dagskrár, hvað tókst vel og hvað betur hefði mátt fara.
3.Hreyfivika
1904042
Mál án gagna. Íþrótta- og tómstundafulltrúi kynnir málið.
Nefndin fagnar framtakinu.
4.Hátíðahöld á þjóðhátíðardaginn 17. júní
1509023
Mál án gagna. Menningarfulltrúi reifar hugmyndir að 17. júní hátíðarhöldum árið 2019
Málin rædd og ýmsar hugmyndir komu fram um dagskrána. Vilji er til að efla dagskrána og auka hana.
5.Fjölskyldudagar 2019
1904043
Mál án gagna. Menningarfulltrúi fer yfir stöðu mála varðandi Fjölskyldudaga 2019.
Málin rædd og ýmsar gagnlegar ábendingar komu fram.