Frístunda- og menningarnefnd Sveitarfélagsins Voga
110. fundur
16. nóvember 2023 kl. 17:30 - 18:30 á bæjarskrifstofu
Nefndarmenn
Guðmann Rúnar Lúðvíkssonformaður
Sædís María Drzymkowskavaraformaður
Eva Björk Jónsdóttiraðalmaður
Anna Karen Gísladóttiraðalmaður
Samúel Þórir Drengssonaðalmaður
Starfsmenn
Guðmundur Stefán GunnarssonÍþrótta- og tómstundafulltrúi
Fundargerð ritaði:Guðmundur Stefán GunnarssonÍþrótta og tómstundafulltrúi
Dagskrá
1.Aðventa Aragerði 2023
2311003
Dagskrá aðventuskemmtunar lögð fram.
Íþrótta og tómstundafulltrúi lagði fram drög af dagskrá sem var rædd og sammþykt.
2.Íþróttamaður ársins - Hvatningaverðlaun 2023
2311012
Skipulag íþróttamanns ársins tímasetningar og framkvæmd.
Ákveðið var að auglýsa eftir tilnefningum til íþróttamanns ársins. Allar tilnefningar þurfa að berast íþrótta og tómstundafulltrúa fyrir 20. desember Val íþróttamanns fer fram 21.desember.
3.Áramót 2023-2024
2311010
Framkvæmd og skipulag Áramótabrennu
Rætt var um áramótabrennu. Frístunda og menninganefnd felur Íþrótta og tómstundafulltrúa að finna hentugan stað fyrir hana.
4.Þrettándinn 2024
2311011
Skipulag þrettándaskemmtunar.
Viðburður ræddur og drög af dagskrá mótuð. Íþrótta og tómstundfulltrúa er falið að klára dagskránna.
5.2023 - Frístunda og menninganefnd - 1. desember - Er grundvöllur að taka upp fyrri hefðir
2311018
Umræður um 1. desember.
Hugmynd af endurvakningu hátíðarhalda á fyrsta desember rædd. Hugmyndinni var vel tekið.
6.Fjölskyldudagar 2022
2203005
Lokaúttekt á fjölskyldudögum
Dagskrá og utanumhald hátíðar rætt. Almenn ánægja var með hátíðina þetta árið. Nefnd vill hafa meira að segja um hátíðarhöld framtíðarinnar.
7.Hlutverk Frístunda og menninganefndar í skipulagningu viðburða sveitarfélagsins
2311019
Aðkoma Frístunda og menninganefndar að hátíðum og viðburðum sveitarfélagsins.
Nefnd fái að vera meira inni í viðburðahaldi sveitarfélagsins. Íþrótta og tómstundafulltrúi ætlar að kynna ferlið við undirbúning utanumhald fjölskyldudaga á fundi 21.desember.