Frístunda- og menningarnefnd Sveitarfélagsins Voga
57. fundur
10. desember 2015 kl. 19:30 - 19:30 í félagsmiðstöð
Nefndarmenn
Oddur Ragnar Þórðarsonaðalmaður
Þorvaldur Örn Árnasonvaraformaður
Kristinn Benediktssonaðalmaður
Marteinn Ægissonaðalmaður
Stefán Arinbjarnarson, frístunda- og menningarfulltrúiembættismaður
Guðmundur Kristinn Sveinssonvaramaður
Fundargerð ritaði:Stefán Arinbjarnarsonfrístunda- og menningarfulltrúi
Dagskrá
1.Fjárhagsáætlun Frístunda- og menningarsviðs 2016
1509010
Rætt um gjaldskrá íþróttamiðstöðvar. Sérstaklega um gjald vegna útleigu félagsmiðstöðvar og íþróttasals í tengslum við afmælisveislur. Ákveðið að halda gjaldi og fyrirkomulagi óbreyttu.
2.Íþróttamaður ársins í Vogum.
1511035
Málið var rætt á síðasta fundi FMN og var þá farið yfir hugmyndir að breytingum á reglugerð um val á íþróttamanni ársins í Vogum. Eftir frekari endurskoðun og umræður eru breytingar afgreiddar og samþykktar og verða sendar áfram til staðfestingar bæjarstjórnar.
3.Menningarstefna Sveitarfélagsins Voga
1502031
Haldið var áfram vinnu við gerð menningarstefnu fyrir sveitarfélagið. Drög að menningarstefnu verða send út til kynningar og umsagnar í framhaldinu.