Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga

230. fundur 26. febrúar 2025 kl. 17:30 - 17:50 á bæjarskrifstofu
Nefndarmenn
  • Birgir Örn Ólafsson forseti bæjarstjórnar
  • Björn Sæbjörnsson varaforseti
  • Eva Björk Jónsdóttir aðalmaður
  • Andri Rúnar Sigurðsson aðalmaður
  • Inga Sigrún Baldursdóttir aðalmaður
  • Friðrik V. Árnason aðalmaður
  • Kristinn Björgvinsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Guðrún P. Ólafsdóttir Bæjarstjóri
  • Ásta Friðriksdóttir Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði: Ásta Friðriksdóttir sviðsstjóri fjármála og stjórnsýslu
Dagskrá
Áður en gengið var til dagskrár leitaði forseti afbrigða og lagði til við bæjarstjórn að við útsenda dagskrá bættist dagskrárliðurinn, Skipulagsnefnd Sveitarfélagsins Voga -67, sem verður 9. mál á dagskrá fundarins og er um framlagningu síðustu fundargerðar skipulagsnefndar til kynningar að ræða.

1.Mál til umsagnar frá nefndasviði Alþingis 2025

2502009

Drög að frumvarpi um Jönfnunarsjóð sveitarfélaga lögð fram til umsagnar. Innviðaráðuneytið hefur ákveðið að framlengja samráðsfrest til kl. 12:00, miðvikudaginn 5. mars nk.
Afgreiðsla bæjarstjórnar:
Lagt fram

2.Samkomulag - Hafnargata 101

2412009

Tekið fyrir 10. mál á dagskrá 420. fundar bæjarráðs þann 19.02.2025: Samkomulag - Hafnargata 101.



Lögð fram drög að samkomulagi um uppbyggingu við Hafnargötu 101. Sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs situr fundinn undir þessum dagskrárlið.



Birgir Örn Ólafsson vék af fundi undir þessum dagskrárlið.



Afgreiðsla:

Bæjarráð samþykkir samhljóða drög að samningi og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.
Birgir Örn Ólafsson vakti athygli á vanhæfi sínu og tók ekki þátt í afgreiðslu þessa dagskrárliðar.

Afgreiðsla bæjarstjórnar:
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs og samþykkir samhljóða með 6 atkvæðum.

Til máls tók:
BS

3.Lóðarleigusamningar fyrir hesthúsahverfi

2501006

Tekið fyrir 8. mál á dagskrá 420. fundar bæjarráðs þann 19.02.2025: Lóðarleigusamningar fyrir hesthúsahverfi.



Lögð fram að nýju drög að nýjum lóðarleigusamningum í hesthúsahverfi auk minnisblaðs verkefnastjóra umhverfis- og skipulagssviðs. Verkefnastjóri á umhverfis- og skipulagssviði situr fundinn undir þessum dagskrárlið



Bæjarráð samþykkir samhljóða tillögur að nýjum lóðaleigusamningum í hesthúsahverfi og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.
Afgreiðsla bæjarstjórnar:
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs og samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum.

Til máls tóku:
BS, BÖÓ

4.Aðal- og deiliskipulagstillaga Hafnargötu 101

2501010

Tekið fyrir 3. mál á dagskrá 67. fundar skipulagsnefndar þann 18.02.2025: Aðal- og deiliskipulagstillaga Hafnargötu 101.



Lögð er fyrir breyting á aðalskipulagi og nýtt deiliskipulag við Hafnargötu 101. Um sömu landnotkun er að ræða og áður en aukið byggingarmagn í aðalskipulagi og útfærslu mannvirkja í deiliskipulag og frekari skilmálum lóðarinnar.



Afgreiðsla skipulagsnefndar: Nefndin tekur vel í aðalskipulagsbreytingu og nýtt deiliskipulag við Hafnargötu 101. Nefndin leggur til við bæjarstjórn að málið fái málsmeðferð sem óveruleg aðalskipulagsbreyting skv. 2. mgr. 36. gr. og nýtt deiliskipulag verði kynnt skv. 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Samþykkt
Birgir Örn Ólafsson vakti athygli á vanhæfi sínu og tók ekki þátt í afgreiðslu þessa dagskrárliðar.

Afgreiðsla bæjarstjórnar:
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar og samþykkir samhljóða með 6 atkvæðum.

Til máls tók:
ARS

5.Kosning í ráð og nefndir 2025

2502022

Lögð fram tillaga að breytingu á skipan í frístunda- og menningarnefnd. Sædís María Drzymkowska hefur flutt úr sveitarfélaginu og víkur því sæti úr nefndinni.

Í hennar stað er lagt til að tilnefnd verði Björg Ásta Þórðardóttir og hún verði jafnframt varaformaður nefndarinnar.
Afgreiðsla bæjarstjórnar:
Samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum.
Bæjarstjórn þakkar Sædísi Maríu fyrir störf hennar í þágu sveitarfélagsins.

6.Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga - 420

2502003F

Afgreiðsla bæjarstjórnar:
Lagt fram

7.Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga - 419

2501006F

Afgreiðsla bæjarstjórnar:
Lagt fram

8.Fræðslunefnd Sveitarfélagsins Voga - 112

2502002F

Afgreiðsla bæjarstjórnar:
Lagt fram

9.Skipulagsnefnd Sveitarfélagsins Voga - 67

2502001F

Afgreiðsla bæjarstjórnar:
Lagt fram

10.Frístunda- og menningarnefnd Sveitarfélagsins Voga - 121

2501005F

Afgreiðsla bæjarstjórnar:
Lagt fram

Til máls tók:
EBJ

11.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 96

2412006F

Afgreiðsla bæjarstjórnar:
Lagt fram

Fundi slitið - kl. 17:50.

Getum við bætt efni síðunnar?