Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga

227. fundur 27. nóvember 2024 kl. 17:30 - 17:42 á bæjarskrifstofu
Nefndarmenn
  • Birgir Örn Ólafsson forseti bæjarstjórnar
  • Björn Sæbjörnsson varaforseti
  • Eva Björk Jónsdóttir aðalmaður
  • Andri Rúnar Sigurðsson aðalmaður
  • Inga Sigrún Baldursdóttir aðalmaður
  • Friðrik V. Árnason aðalmaður
  • Kristinn Björgvinsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Ásta Friðriksdóttir embættismaður
Fundargerð ritaði: Ásta Friðriksdóttir verkefnastjóri reikningshalds og umbóta
Dagskrá

1.Fjárhagsáætlun 2025 - 2028

2407024

Tekið fyrir 6. mál úr fundargerð 414. fundar bæjarráðs þann 22.11.2024: Fjárhagsáætlun 2025-2028.



Lögð fram fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Voga fyrir árið 2024 og langtímaáætlun 2025-2027. Davíð Viðarsson, sviðsstjóri umhverfis og skipulagssviðs og Ásta Friðriksdóttir, verkefnastjóri reikningshalds og umbóta stitja undir þessum dagskrárlið.



Bæjarráð samþykkir samhljóða að vísa fyrirliggjandi tillögu að fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Voga 2025 og þriggja ára áætlun 2026-2028 til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
Afgreiðsla bæjarstjórnar:
Bæjarstjórn samþykkir að vísa tillögunni til síðari umræðu í bæjarstjórn.
Samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum

2.Viðaukar 2024

2403003

Tekið fyrir 1. mál á dagskrá 414. fundar bæjarráðs þann 20.11.2024: Viðaukar 2024.



Lagður fram viðauki númer 5 2024 vegna reksturs.



Tekjuauking:

Útsvar fyrstu níu mánuði ársins er 30 m.kr. hærra en áætlað var, greiðsla vegna gjaldfrjálsra skólamáltíða nemur 6,6 m.kr á árinu sbr. mál nr. 2407022, auk þess sem innheimtar hafa verið leigutekjur og endurgreiðsla rafmagns á tjaldsvæði vegna áranna 2020-2023 að fjárhæð 9,6 m.kr. sem ekki hafði verið áætlað fyrir sbr. málsnúmer 2303001.



Eftirfarandi mál hafa verið samþykkt í bæjarráði og er áætlaður kostnaður eftirfarandi: Sérfræðikostnaður á bæjarskrifstofu -2,5 m.kr. (mál 2410011), stöðugildi bygggingarfulltrúa og verkefnastjóra reikningshalds og umbóta á bæjarskrifstofu -7 m.kr. (mál 2407026), þráðlausir punktar í skóla -2,25 m.kr.(mál 2410017) og tímabundið hlutastöðugildi í leikskóla 0,5 m.kr. (mál 2411001).



Auk þess hafa eftirfarandi deildir félagsþjónustu verið umfram áætlaðan kostnað fyrstu níu mánuði ársins vegna fjölgunar þjónustuþega og aukningar þjónustuþarfar:

Barnavernd fóstur utan heimilis -2 m.kr, barnavernd úrræði á heimili -0,5 m.kr., barnavernd annað -0,6 m.kr., ferðaþjónusta fatlaðra -4 m.kr., Selið-dagdvöl -1,3 m.kr. og heimaþjónusta aldraðra -1,9 m.kr.



Lagt er til að tekjum umfram kostnaðarauka hér að ofan að fjárhæð 23,7 m.kr. sé bætt við handbært fé sveitarfélagsins.



Ásta Friðriksdóttir, verkefnastjóri reikningshalds og umbóta situr undir þessum dagkrárlið.



Afgreiðsla bæjarráðs:

Bæjarráð samþykkir framlagðan viðauka og vísar honum til staðfestingar í bæjarstjórn.
Afgreiðsla bæjarstjórnar:
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs.
Samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum

3.Kosning í ráð og nefndir 2024

2401054

Lagðar fram tillögur að breytingu á skipan varamanna í fræðslunefnd. Elísabet Ásta Eyþórsdóttir verði 1. varamaður E-lista í fræðslunefnd og Ingþór Guðmundsson verði 2. varamaður E-lista í sömu nefnd í stað Þorhildar Sifjar Þórmundsdóttur sem víkur úr fræðslunefnd sem varamaður.
Afgreiðsla bæjarstjórnar:
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum framlagða tillögu og þakkar Þóhildi Sif Þórmundsdóttur fyrir hennar störf í þágu sveitarfélagsins.

4.Fyrirspurn um byggingarmál, stækkun á byggingareit sjávarborg 14-16

2411017

Tekið fyrir 2. mál úr fundargerð 65. fundar skipulagsnefndar þann 19.11.2024: Fyrirspurn um byggingarmál, stækkun á byggingareit Sjávarborgar 14-16.



Kristinn Ragnarson, fyrir hönd Garðprýði ehf, sendir inn fyrirspurn um stækkun á byggingareit. Samkvæmt gildandi deilliskipulagi fyrir lóðirnar er gert ráð fyrir að á hvorri lóð er byggingarreitur 15 x21 m að stærð. Tillagan gerir ráð fyrir heimld að stækka hluta byggingarreitar um 7.5 x 3.5 m. og 5 x1 m til vesturs og tilfæra bílastæði á lóð nr. 14 að suður hluta lóðar. Að öðru leyti gilda áfram sömu skilmálar.



Afgreiðsla skipulagsnefndar: Það er mat skipulagsnefndar að um óverulega breytingu sé að ræða skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Nefndin felur Umhverfis- og skipualgssviði að grendarkynna í samræmi við 2. mgr. 43. gr. og leggur til við bæjarstjórn að heimila breytinguna og fyrirliggjandi tillaga verði samþykkt og málsmeðferð verði í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Afgreiðsla bæjarstjórnar:
Bæjarstjórn samþykkir að heimila breytinguna og fyrirliggjandi tillaga verði samþykkt og málsmeðferð verði í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum

5.Kirkjuholt skipulagsmál

2206024

Tekið fyrir 2. mál úr fundargerð 64. fundar skipulagsnefndar 15. október 2024: Kirkjuholt skipulagsmál. Nefndin felur Umhverfis- og skipualgssviði að grendarkynna í samræmi við 2. mgr. 43. gr. og leggur til við bæjarstjórn að heimila breytinguna og fyrirliggjandi tillaga verði samþykkt og málsmeðferð verði í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.



Hlynur Sigursveinsson, fyrir hönd Húseiningar ehf., óskar eftir óverulegri breytingu á deiliskipulagi. Um er að ræða aukningu á byggingarmagni innan skilgreinds byggingarreits á lóðinni við Kirkjugerði 2-4 úr 320m2 í 353m2.



Afgreiðsla skipulagsnefndar:

Það er mat skipulagsnefndar að um óverulega breytingu sé að ræða skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Nefndin felur Umhverfis- og skipualgssviði að grendarkynna í samræmi við 2. mgr. 43. gr.

Afgreiðsla bæjarstjórnar:
Bæjarstjórn samþykkir að heimila breytinguna og fyrirliggjandi tillaga verði samþykkt og málsmeðferð verði í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum.

6.Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga - 414

2411004F

Afgreiðsla bæjarstjórnar:
Lagt fram.

7.Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga - 413

2411002F

Afgreiðsla bæjarstjórnar:
Lagt fram.

8.Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga - 412

2411001F

Afgreiðsla bæjarstjórnar:
Lagt fram.

9.Skipulagsnefnd Sveitarfélagsins Voga - 65

2410004F

Afgreiðsla bæjarstjórnar:
Lagt fram.

10.Frístunda- og menningarnefnd Sveitarfélagsins Voga - 119

2411003F

Afgreiðsla bæjarstjórnar:
Lagt fram.

Til máls tók:
EBJ.

Fundi slitið - kl. 17:42.

Getum við bætt efni síðunnar?