Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga

226. fundur 30. október 2024 kl. 17:30 - 17:36 á bæjarskrifstofu
Nefndarmenn
  • Björn Sæbjörnsson varaforseti
  • Eva Björk Jónsdóttir aðalmaður
  • Andri Rúnar Sigurðsson aðalmaður
  • Inga Sigrún Baldursdóttir aðalmaður
  • Friðrik V. Árnason aðalmaður
  • Ingþór Guðmundsson 1. varamaður
  • Eðvarð Atli Bjarnason 1. varamaður
Starfsmenn
  • Guðrún P. Ólafsdóttir Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði: Guðrún P. Ólafsdóttir starfandi bæjarstjóri
Dagskrá

1.Starfslok bæjarstjóra

2410016

Tekið fyrir 1. mál á dagskrá 411. fundar bæjarráðs þann 18.10.2024: Starfslok bæjarstjóra.



Lagt fram erindi frá bæjarstjóra með ósk um lausn frá störfum.

Afgreiðsla bæajrráðs:

Bæjarráð samþykkir framlagt erindi og drög að starfslokasamningi og vísar honum til staðfestingar í bæjarstjórn.
Afgreiðsla bæjarstjórnar:
Samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum.

Bæjarstjórn þakkar Gunnari gott samstarf og óskar honum velfarnaðar í þeim veikindum sem hann stendur frammi fyrir.

2.Endurskoðun aðalskipulags 2024 - 2040

2104026

Tekið fyrir 1. mál á dagskrá 64. fundar skipulagsnefndar þann 15.10.2024: Endurskoðun aðalskipulags 2024 - 2040.



Endurskoðun aðalskipulags tekið fyrir að nýju. Lögð fyrir vinnslutillaga aðalskipulags Sveitarfélagsins Voga 2024-2040.



Afgreiðsla skipulagsnefndar: Nefndin samþykkir aðalskipulagstillöguna og leggur til við bæjarstjórn að hún verði send til Skipulagsstofnunar til athugunar í samræmi við 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og í framhaldi auglýst í samræmi við 31. gr. sömu laga.
Afgreiðsla bæjarstjórnar:
Samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum að senda aðalskipulagstillöguna til Skipulagsstofnar til athugunar í samræmi við 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og í framhaldi verði hún auglýst í samræmi við 31. gr. sömu laga.

3.Frístundasvæði við Breiðagerðisvík - Deiliskipulagsmál

2104030

Tekið fyrir 4. mál á dagskrá 64. fundar skipulagsnefndar þann 15.10.2024:Frístundasvæði við Breiðagerðisvík - Deiliskipulagsmál.



Breytingar á fyrirhuguðu deiliskipulagi fyrir frístundabyggð í Breiðagerði kynnt fyrir nefndinni. Vegna umsagnar minjastofnunar þá munu byggingarreitir á lóðum Breiðagerðis 18 og 19 falla út.



Afgreiðsla skipulagsnefndar: Málið tekið fyrir að nýju eftir umsögn Minjastofnunar. Nefndin samþykkir tillögu að deiliskipulagi og leggur til við bæjarstjórn að hún samþykki að auglýsa aftur tillöguna skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Afgreiðsla bæjarstjórnar:
Tillaga að deiliskipulagi þar sem byggingarreitir á lóðum Breiðagerðis 18 og 19 falla út og sé aftur auglýst skv. 1 mgr. 41 gr. skipulagslaga nr. 123/20210 samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum.

4.Kosning í ráð og nefndir 2024

2401054

Ingvi Ágústssyni hefur flutt lögheimili sitt úr sveitarfélaginu og víkur því sem varamaður í bæjarstjórn sbr. 23. grein samþykktar um stjórn Sveitarfélagsins Voga. Í stað hans verður Guðrún Kristín Ragnarsdóttir 3. varabæjarfulltrúi E-lista.



Eftirfarandi breytingar eru lagðar til á skipan í frístunda- og menningarnefnd:

Lagt er til að Guðmann Rúnar Lúðvíksson taki sæti sem aðalmaður og taki jafnframt við formensku í frístunda- og menningarnefnd og Sædís María Drymkowska verði varaformaður. Jóna Kristbjörg Stefánsdóttir víkur úr nefndinni.



Þá eru lagðar til eftirfarandi breytingar á skipan fulltrúa í skipulagsnefnd:

Lagt er til að Birkir Rútsson verði 1. varamaður E lista í skipulagsnefnd í stað Invga Ágústssonar sem víkur sem varamaður.
Afgreiðsla bæjarstjórnar:
Samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum.

Fyrir hönd bæjarstjórnar þakkar forseti Ingva og Jónu fyrir ánægjulegt samstarf og óskar þeim alls velfarnaðar.

5.Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga 2024

2410010

Tekið fyrir 1. mál á dagskrá 410. fundar bæjarráðs þann 16.10.2024: Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga 2024.



Lagt fram bréf frá Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga.

Afgreiðsla bæjarráðs:

Lagt fram.
Afgreiðsla bæjarstjórnar:
Lagt fram.

6.Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga - 411

2410003F

Afgreiðsla bæjarstjórnar:
Lagt fram.

7.Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga - 410

2410001F

Afgreiðsla bæjarstjórnar:
Lagt fram.

8.Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga - 409

2409012F

Afgreiðsla bæjarstjórnar:
Lagt fram.

9.Skipulagsnefnd Sveitarfélagsins Voga - 64

2409011F

Afgreiðsla bæjarstjórnar:
Lagt fram.

10.Frístunda- og menningarnefnd Sveitarfélagsins Voga - 118

2410002F

Afgreiðsla bæjarstjórnar:
Lagt fram.

Fundi slitið - kl. 17:36.

Getum við bætt efni síðunnar?