Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga

212. fundur 25. október 2023 kl. 18:00 - 18:03 á bæjarskrifstofu
Nefndarmenn
  • Björn Sæbjörnsson forseti bæjarstjórnar
  • Andri Rúnar Sigurðsson aðalmaður
  • Inga Sigrún Baldursdóttir aðalmaður
  • Eva Björk Jónsdóttir aðalmaður
  • Friðrik V. Árnason aðalmaður
  • Kristinn Björgvinsson aðalmaður
  • Ingþór Guðmundsson 1. varamaður
Starfsmenn
  • Gunnar Axel Axelsson Bæjarstjóri
  • Guðrún P. Ólafsdóttir Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði: Gunnar Axel Axelsson bæjarstjóri
Dagskrá

1.Viðaukar við fjárhagsáætlun 2023

2303017

Tekið fyrir 5. mál af dagskrá 384. fundar bæjarrráðs frá 4.10.2023: Viðaukar við fjárhagsáætlun 2023



Afgreiðsla bæjarráðs:



Lagður fram viðauki 3 vegna reksturs



Laun og launatengd gjöld



Vegna áhrifa kjarasamninga BHM og BSRB kemur til hækkunar á launum og launatengdum gjöldum sem nemur 45,3 m.kr umfram áætlun. Áhrifin dreifast nokkuð jafnt á málaflokka í samhengi við umfang þeirra.



Annar rekstrarkostnaður



Samtals nemur fyrirsjáanleg aukning annars rekstrarkostnaðar 46,8 m.kr umfram áætlun. Þar af er áætlað að kostnaður vegna skólavistar utan lögheimilissveitarfélgs muni nema um 8,3 m.kr á árinum umfram það sem áætlað var, verðhækkanir á aðföngum í skólaeldhúsi muni leiða til 4 m.kr. útgjaldaauka á ársgrundvelli umfram það sem gert var ráð fyrir í áætlun ársins. Kostnaður við rekstur Búmannaíbúða hefur sömuleiðis hækkað m.a. vegna aukinnar verðbólgu eða samtals um 5,4 m.kr á ársgrundvelli sem og útgjöld vegna ferðaþjónustu fatlaðs fólks, vegna greiðslu fjárhagsaðstoðar og barnaverndar eða um alls 16.8 m.kr á ársgrundvelli.



Samtals áætlaður útgjaldaauki 92,1 m.kr.



Útgjaldaauka er mætt með eftirfarandi hækkun á skatttekjum:



0001-0022/útsvar: 32 m.kr.



0006 -00011/fasteignaskattar: 14 m.kr.



0010/Framlög jöfnunarsjóðs: 24 m.kr



Samtals 70. m.kr



Lagt er til að mismun útgjaldaauka og áætlaðrar hækkunar skatttekna verði mætt með lækkun á handbæru fé.





Afgreiðsla:

Bæjarráð samþykkir framlagðan viðauka og vísar honum til staðfestingar í Bæjarstjórn.
Afgreiðsla bæjarstjórnar: Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs.
Samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum.

2.Hluthafafundur Bláa lónsins hf

2310014

Tekið fyrir 6. mál á dagskrá 385. fundar bæjarráðs sem haldinn var 18.10.2023



Lagt fram minnisblað sviðsstjóra Fjármála- og stjórnsýslusviðs

Bæjarráð samþykkir samhljóða að leggja til við Bæjarstjórn að selja hlut sveitarfélagsins í Bláa Lóninu Svartsengi hf.
Afgreiðsla bæjarstjórnar:
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs.

Samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum.

3.Kosning í nefndir og ráð 2023

2303040

Lagðar fram eftirfarandi tillögur að breytingum á skipan fræðslunefndar.



Í stað Bergs Brynjars Álfþórssonar sem hefur óskað eftir lausn frá störfum í fræðslunefnd á grundvelli 42. greinar samþykkta um stjórn sveitarfélagsins Voga, tekur Helga Ragnarsdóttir Akurgerði 24 sæti sem aðalmaður í fræðslunefnd.



Eva Björk Jónsdóttir Hólagötu 1A tekur við hlutverki formanns fræðslunefndar og Helga Ragnarsdóttir hlutverki varaformanns.



Í stað Helgu Ragnarsdóttir tekur Þórhildur Sif Þórmundsdóttir Aragerði 7 sæti 2. varamanns í fræðslunefnd.
Afgreiðsla bæjarstjórnar:
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum framlagða tillögu og þakkar Bergi B. Álfþórssyni fyrir störf hans í þágu fræðslunefndar.

4.Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga - 384

2309009F

5.Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga - 385

2310004F

6.Skipulagsnefnd Sveitarfélagsins Voga - 55

2309007F

7.Fundargerðir fjölskyldu- og velferðarráðs 2023

2301021

Lögð fram fundargerð 45. fundar Fjölskyldu og velferðarráðs sem haldinn var 22.06.2023.

Í möppunni eru ýmis fylgiskjöl sem fylgja málinu.

Fundi slitið - kl. 18:03.

Getum við bætt efni síðunnar?