Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga

208. fundur 31. maí 2023 kl. 18:00 - 18:10 á bæjarskrifstofu
Nefndarmenn
  • Björn Sæbjörnsson forseti bæjarstjórnar
  • Andri Rúnar Sigurðsson aðalmaður
  • Inga Sigrún Baldursdóttir aðalmaður
  • Birgir Örn Ólafsson varaforseti
  • Eva Björk Jónsdóttir aðalmaður
  • Ingþór Guðmundsson 1. varamaður
    Aðalmaður: Friðrik V. Árnason
  • Kristinn Björgvinsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Skrifstofa vogar
  • Gunnar Axel Axelsson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Gunnar Axel Axelsson bæjarstjóri
Dagskrá

1.Samningur um fræðsluþjónustu

1906005

Tekið fyrir 4. mál úr fundargerð 377. fundar bæjarráðs sem haldinn var 24.05.2023: Samningur um fræðsluþjónustu

Afgreiðsla bæjarráðs: Samþykkt samhljóða að fela bæjarstjóra að undirrita samninginn fyrir hönd Sveitarfélagsins Voga.
Afgreiðsla bæjarstjórnar:
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs.

Samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum.

Til máls tóku: GAA

2.Ráðning sviðsstjóra

2303039

Tekið fyrir 6. mál úr fundargerð 377. fundar bæjarráðs sem haldinn var 24.05.2023: Ráðning sviðsstjóra.

Afgreiðsla bæjarráðs:
Í samræmi við 50. gr. samþykkta Sveitarfélagsins Voga leggur bæjarstjóri til við bæjarráð að Guðrúnu P. Ólafsdóttur sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs, sem jafnframt gegnir hlutverki staðgengils bæjarstjóra, sé veitt prókúra frá og með 1. júní næstkomandi.

Afgreiðsla bæjarráðs: Samþykkt samhljóða, vísað til staðfestingar í bæjarstjórn.
Afgreiðsla bæjarstjórnar:
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs.

Samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum.

Fyrir hönd bæjarstjórnr bauð forseti Guðrúnu velkomna til starfa.

3.Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga - 376

2305002F

Fundargerð 376. fundar bæjarráðs er lögð fram til kynningar á 208. fundi bæjarstjórnar
Lagt fram
Til máls tóku: BÖÓ

4.Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga - 377

2305007F

Fundargerð 377. fundar bæjarráðs er lögð fram til kynningar á 208. fundi bæjarstjórnar
Lagt fram

5.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 82

2303010F

Fundargerð 82. afgreiðslufundar ubyggingarfulltrúa er lögð fram til kynningar á 208. fundi bæjarstjórnar
Lagt fram

6.Skipulagsnefnd Sveitarfélagsins Voga - 50

2304003F

Fundargerð 50. fundar skipulagsnefndar er lögð fram til kynningar á 208. fundi bæjarstjórnar
Lagt fram
Til máls tóku: ARS, BÖÓ, BS

7.Frístunda- og menningarnefnd Sveitarfélagsins Voga - 107

2305006F

Fundargerð 107. fundar frístunda- og menningarnefndar er lögð fram til kynningar á 208. fundi bæjarstjórnar
Lagt fram

8.Umhverfisnefnd Sveitarfélagsins Voga - 18

2305003F

Fundargerð 18. fundar umhverfisnefndar lögð fram til kynningar á 208. fundi bæjarstjórnar
Lagt fram
Til máls tók: ISB

Fundi slitið - kl. 18:10.

Getum við bætt efni síðunnar?