152. fundur
29. maí 2013 kl. 08:00 - 09:30 á bæjarskrifstofu
Nefndarmenn
Kristinn Björgvinssonformaður
Inga Sigrún Atladóttir
Erla Lúðvíksdóttir
Fundargerð ritaði:Ásgeir Eiríkssonbæjarstjóri
Dagskrá
Kristinn Björgvinsson formaður stýrir fundi.
1.Ársskýrsla Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum 2012
1305051
Ársskýrslan fylgir með í gögnum.
Ársskýrslan lögð fram.
2.Skipan stjórnar og fjárhagur Reykjanesfólkvangs.
1301022
Hér er lagt til að fulltrúi sveitarfélagsins í stjórn Reykjanesfólkvagns verði einnig fulltrúi sveitarfélagsins í Bláfjallafólkvangi. Þá er lögð til hækkun á framlagi til Reykjanesfólkvangs, hækkunin hefur óveruleg áhrif.
Lagt fram bréf formanns stjórnar Reykjanesfólkvangs dags. 15. janúar 2013. Bæjarráð samþykkir að fulltrúi sveitarfélagsns í stjórn Reykjanesfólkvangs, Þorvaldur Örn Árnason, verði jafnframt fulltrúi sveitarfélagsins í Bláfjallafólkvangi. Bæjarráð samþykkir hækkun fjárframlags sveitarfélagsins til Reykjanesfólkvangs úr kr. 17,- á íbúa í kr. 35,- á íbúa. Hækkunin rúmast innan ramma fjárhagsáætlunar ársins. Samþykkt samhljóða.
3.Ársfjórðungleg rekstraryfirlit
1305014
Með fundarboði fylgir yfirlit um þróun fjölda einstaklinga á fjárhagsaðstoð á þessu ári.
Á fundinum er lagt fram yfirlit um þróun fjölda einstaklinga á fjárhagsaðstoð fyrstu fjóra mánuði ársins 2013. Fram kemur í gögnunum að bótaþegum fækkað úr 16 í 11 milli mánaðanna mars - apríl.
4.Viðauki við fjárhagsáætlun 2013-2016
1303028
Með þessu máli fylgir minnisblað um endurnýjun gatna og endurbætur á Vogatjörn.
Lagt fram minnisblað bæjarstjóra dags. 27.05.2013 um viðhald gatna og endurbætur á Vogatjörn. Málið var til umfjöllunar á 85. fundi bæjarstjórnar og þar samþykkt að vísa því til meðferðar við gerð fjárhagsáætlunar 2014. Bæjarstjóra falið að kanna hvaða þættir hverfisvernd Vogatjarnar nær yfir og hvaða framkvæmdir eru heimilar innan ramma hverfisverndar og friðunar samkvæmt Náttúruminjarskrá.
5.Lagning hitaveitu á Vatnsleysuströnd
1207008
Verkfræðistofan Mannvit býðst til að framkvæma skoðun valkosta og mat á hagkvæmni þeirra. Áætlaður kostnaður við verkið er kr. 900.000. Verklýsing fylgir með í gögnum.
Lögð fram verkáætlun frá verkfræðistofunni Mannvit vegna gerðar hagkvæmniathugunar á lagningu hitaveitu á Vatnsleysuströnd. Bæjarráð samþykkir tilboðið og felur bæjarstjóra framkvæmd málsins.
6.Tilhögun skólaaksturs og samþætting við almenningssamgöngur
1305068
Minnisblað fylgir, taka þarf ákvörðun um hvort ráðist verði í kaup á skólabíl/strætó.
Lagt fram minnisblað bæjarstjóra dags. 27.05.2013 þar sem reifaðir eru nokkrir valkostir varðandi framkvæmd skólaaksturs og aksturs Vogastrætó. Bæjarstjóra falið að leita leiða til að festa kaup á skólabíl og fjármagna hann að hluta með rekstrarleigu.
7.Uppbygging raforkuflutningskerfis á Reykjanesi
0707013
Af hálfu fulltrúa H-lista er óskað eftir að setja á dagskrá stöðu viðræðna við Landsnet um lagningu Suðurlínu. Liðurinn er án gagna.
Bæjarráð óskar eftir upplýsingum um hversu mikið af áætlaðri línu innan lögsögu sveitarfélagsins er enn ósamið um milli Landsnets og landeigenda. Bæjarráð óskar jafnframt eftir upplýsingum um áætlaðan kostnað Landsnets við línulögnina sem Landsnet hefur kynnt Orkustofnun.
8.Könnun á kostnaði og möguleikum við uppbyggingu lítillar rennibrautar við sundlaug sveitarfélagsins
1305069
Að beiðni fulltrúa H-lista er málið sett á dagskrá. Liðurinn er án gagna.
Inga Sigrún Atladóttir leggur fram svohljóðandi bókun: Sveitarfélagið Vogar hefur undanfarin ár lagt áherslu á að vera fjölskylduvænt samfélag. Hluti af þeirri stefnu ætti að vera að auka framboð á afþreyingu fyrir börn og unglinga. Í stefnuskrá H-lista og samstarfssamningi H og E lista var lagt til að ráðist verði í byggingu lítillar rennibrautar við sundlaugina í því skyni að auka aðsókn barna og unglinga að lauginni. Ég legg því til að bæjarstjóra verði falið að skoða þá möguleika sem eru til staðar og fá kostnaðaráætlun af hönnun og uppsetningu slíkrar brautar. Samþykkt.
9.657. fundur Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum
1305058
Fundargerðin lögð fram.
10.436. fundur Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja
1305053
Fundargerðin lögð fram.
11.26. fundur Heklunnar 5. apríl 2013
1305049
Fundargerðin lögð fram.
12.5. fundur stjórnar Reykjanes jarðvangs ses. 8. maí 2013