Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga

151. fundur 08. maí 2013 kl. 08:00 - 09:30 á bæjarskrifstofu
Nefndarmenn
  • Inga Sigrún Atladóttir varaformaður
  • Jóngeir Hjörvar Hlinason 1. varamaður
  • Bergur Álfþórsson aðalmaður
Fundargerð ritaði: Ásgeir Eiríksson bæjarstjóri
Dagskrá
Inga Sigrún Atladóttir varaformaður stýrir fundi.

1.Eftirlitsmyndavél í Vogum

1304018

Kjartan Már Kjartansson og Hafliði Jónsson frá Securitas mæta á fundinn og fara yfir tilraunaverkefni með eftirlitsmyndavél sem hefur staðið yfir undanfarið. Liðurinn er án gagna.
Kjartan Már Kjartansson og Hafliði Jónsson frá Securitas mættu á fundinn og gerðu grein fyrir tilraunaverkefni með eftirlitsmyndavél sem staðið hefur yfir í sveitarfélaginu undanfarnar vikur. Bæjarráð þakkar gestunum fyrir kynninguna og skýr svör. Bæjarstjóra falið að vinna áfram að skoðun málsins.

2.Ársfjórðungleg rekstraryfirlit

1305014

Lagt fram rekstraryfirlit málaflokka fyrir mánuðina janúar - mars 2013 ásamt samanburði við áætlun.

Bergur Brynjar Álfþórsson leggur fram eftirfarandi bókun:
Nú er fjórðungur ársins liðinn, en búið er að nota 42% þeirra fjármuna sem gert er ráð fyrir í fjárhagsáætlun til fjárhagsaðstoðar. Þessi liður var skorinn verulega niður við gerð fjárhagsáætlunar gegn tillögum fulltrúa E-lista.
Hvernig hyggst meirihlutinn bregðast við þessarri stöðu?

Bókun meirihluta: Bæjarstjóra falið að taka saman upplýsingar um þróun kostnaðar fjárhagsaðstoðar sveitarfélagsins á árinu.

3.Nefndarstörf kjörinna fulltrúa

1305013

Málið er sett á dagskrá að beiðni fulltrúa E-listans í bæjarráði, sem óskar eftir að lagt verði fram yfirlit yfir þá fundi sem kjörnir fulltrúar hafa sótt fyrir hönd sveitarfélagsins og óska eftir greiðslu fyrir. Liðurinn er án gagna.
Með útsendum gögnum var dreift yfirliti yfir þá fundi sem kjörnir fulltrúar hafa sótt á vegum sveitarfélagsins og óska eftir að greitt fyrir samkvæmt reglum sveitarfélagsins þar að lútandi.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að kynna reglur um laun fyrir fundarsetur utan sveitarfélags fyrir öllum bæjar- og varabæjarfulltrúum.

4.Viðauki við fjárhagsáætlun 2013-2016

1303028

Málið er sett á dagskrá að beiðni fulltrúa H-listans, sem óskar eftir að fjallað verði um viðhald gatna, endurbóta á Vogatjörn og uppsetningu rennibrautar við sundlaugina. Liðurinn er án gagna.
Fulltrúar meirihlutans óska eftir að bæjarstjóri falið að taki saman minnisblaði fyrir næsta fund með áætlun um viðhaldi gatna og endurbætur á Vogatjörn og ákvörðun tekin þegar þær upplýsingar liggja fyrir.

Bergur Brynjar Álfþórsson leggur til að málinu verði vísað til gerðar fjárhagsáætlunar 2014. Tillaga Bergs er felld.

5.Brunavarnaráætlun B.S. 2013-2017

1305003

Lögð fram brunavarnaráætlun BS 2013 - 2017. Í samræmi við ákvæði 13.gr. laga nr. 75/2000 er samþykkt áætlunarinnar vísað til bæjarstjórnar.

6.Hjólabókin - beiðni um styrk

1305010

Lagt fram bréf Ómars Smára Kristinssonar dags. 03.05.2013 sem óskar eftir styrk vegna útgáfu bókar fyrir hjólreiðafólk á suðvesturhorni Íslands. Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.

7.Ósk um styrk vegna Bryggudags. Smábátafélag Voga.

1304052

Lagt fram bréf Smábátafélagsins dags. 18.04.2013, beiðni um styrk vegna Bryggjudagsins. Með útsendum gögnum var dreift samstarfsssamningi sveitarfélagsins og Smábátafélagsins. Bæjarstjóra falið að ræða við forsvarsmenn Smábátafélagsins um endurnýjun samstarfssamnings aðila sem og um hugsanlegan stuðning við bryggjudag.

8.Skólahreysti- umsókn um styrk 2013

1304063

Lagt fram bréf Skólahreystis dags. í apríl 2013, sem óskar eftir kr. 50.000 styrk vegna kepninnar. Bæjarráð samþykkir erindið.

9.226. fundur stjórnar Brunavarna Suðurnesja

1305005

Fundargerðin lögð fram. Áréttað er að fundurinn fór fram 25. mars 2013.

10.227. fundur stjórnar Brunavarna Suðurnesja

1305011

Fundargerðin lögð fram.

11.356. fundur stjórnar Hafnarsambands Íslands

1305002

Fundargerðin lögð fram.

12.435. fundargerð stjórnar Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja.

1304062

Fundargerðin lögð fram.

13.656. fundur Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum.

1304065

Fundargerðin lögð fram.

14.805. fundur stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga

1305009

Fundargerðin lögð fram.

Fundi slitið - kl. 09:30.

Getum við bætt efni síðunnar?