Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga

217. fundur 24. ágúst 2016 kl. 06:30 - 08:30 á bæjarskrifstofu
Nefndarmenn
  • Ingþór Guðmundsson varaformaður
  • Inga Rut Hlöðversdóttir 1. varamaður
  • Björn Sæbjörnsson aðalmaður
  • Jóngeir Hjörvar Hlinason áheyrnarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Ásgeir Eiríksson bæjarstjóri
Dagskrá

1.Endurskoðun ársreikninga sveitarfélagsins

1606024

Minnisblöð funda með BDO og KPMG, ásamt tilboði frá KPMG með fylgigögnum.
Málið var áður til umfjöllunar á 214. fundi bæjarráðs, þar sem bæjarráð samþykkti að fela bæjarstjóra áframhaldandi vinnslu málsins. Minnisblöð funda með BDO Endurskoðun ehf. og KPMG, ásamt tilboði með fylgigögnum eru lögð fram með málinu.

Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð samþykkir að fela KPMG endurskoðun sveitarfélagsins og ganga til samninga við félagið á grundvelli tilboðs þeirra til næstu fimm ára. Bæjarráð færir BDO Endurskoðun ehf. þakkir fyrir þjónustu við sveitarfélagið undanfarin fimm ár.

2.Umsókn um styrk - barnakór

1509015

Umsókn um styrk vegna áframhaldandi starfrækslu barnakórs
Erindi sóknarprests Kálfatjarnarsóknar dags. 22.08.2016, umsókn um styrk til áframhaldandi starfrækslu barnakórs í sveitarfélaginu.

Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð samþykkir að styrkja verkefnið á haustönn um kr. 240.000. Málinu er jafnframt vísað til frekari umfjöllunar við gerð fjárhagsáætlunar 2017 - 2020.

Inga Rut Hlöðversdóttir situr hjá við afgreiðslu málsins.

3.Kæra vegna breytinga á deiliskipulagi fyrir Vogabraut.

1607011

Minnisblað bæjarstjóra dags. 22.08.2016 um stöðu málsins.
Minnisblað bæjarstjóra dags. 22.08.2016 um stöðu málsins.

Afgreiðsla bæjarráðs:
Minnisblaðið lagt fram.

4.Mánaðarleg rekstraryfirlit 2016

1602051

Bráðabirgðauppgjör janúar - júní 2016
Bráðabirðgauppgjör janúar - júní 2016. Uppgjörið samanstendur af rekstrarreikningi janúar - júní 2016, efnahagsreikningi 30. júní 2016 ásamt sjóðstreymisyfirliti janúar - júní 2016.

Afgreiðsla bæjarráðs:
Uppgjörið lagt fram.

5.Framkvæmdir 2016

1604020

Samantekt um stöðu framkvæmda 22. ágúst 2016
Samantekt um stöðu framkvæmda 22. ágúst 2016, minnisblað bæjarstjóra dags. 22.08.2016.

Afgreiðsla bæjarráðs:
Minnisblaðið lagt fram. Frekari upplýsingar um framvindu framkvæmda verða lagðar fram á næsta fundi bæjarráðs.

6.Staða starfsmannamála skólanna í upphafi skólaárs

1608012

Upplýsingar um stöðu starfsmannamála skólanna í upphafi skólaársins 2016 - 2017
Upplýsingar um stöðu starfsmannamála skólanna í upphafi skólaársins 2016 - 2017, minnisblað bæjarstjóra dags. 22.08.2016.

Afgreiðsla bæjarráðs:
Minnisblaðið lagt fram.

7.Umsókn um rekstrarleyfi

1607013

Beiðni sýslumanns um umsögn vegna umsóknar um rekstrarleyfi. Fyrir liggja upplýsingar frá byggingafulltrúa um málið.
Erindi Sýslumannsins á Suðurnesjum, dags. 22. júlí 2016, beiðni um umsögn. Fyrir liggja upplýsingar um ráðgerða umsögn byggingafulltrúa sveitarfélagsins um umsóknina.

Afgreiðsla bæjarráðs:
Bæjarráð vísar til umsagnar byggingafulltrúa, þar sem fram kemur að sótt er um leyfi til heimagistingar í húsnæði sem ekki er samþykkt sem íbúðarhúsnæði. Af þessum sökum er umsögn bæjarráðs neikvæð gagnvart þessari umsókn.

8.Fundargerðir Kölku 2016 / Sorpeyðingarstöð Suðurnesja

1601016

Fundargerð 470. fundar Kölku, Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja
Fundargerð 470. fundar stjórnar Kölku, Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja.

Afgreiðsla bæjarráðs:
Fundargerðin lögð fram.

9.Fundargerðir S.S.S. 2016

1601036

Fundargerð 705. fundar stjórnar SSS, Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum
Fundargerð 705. fundar stjórnar SSS, Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum.

Afgreiðsla bæjarráðs:
Fundargerðin lögð fram.

10.Hvatningabréf frá Velferðarvaktinni

1608008

Erindi Velferðarvaktarinnar dags. 9. ágúst 2016, ásamt minnisblaði frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 3. maí 2016 (ábending til skólanefnda).
Erindi Velferðarvaktarinnar dags. 9. ágúst 2016, ásamt minnisblaði frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 3. maí 2016 (ábending til skólanefnda). Velferðarvaktin hvetur sveitarstjórnir, skólanefndir, skólaskrifstofur og skólastjóra til að leggja kostnaðarþátttöku foreldra vegna ritfangakaupa barna af eða halda henni í lágmarki.

Afgreiðsla bæjarráðs:
Lagt fram.

11.Ályktun frá búnaðarþingi 2016

1608003

Ályktun Búnaðarþings 2016, ásamt nokkrum spurningum um fjallskil
Erindi Bændasamtaka Íslands, dags. 9. ágúst 2016. Í erindinu er send ályktun Búnaðarþings 2016 um fjallskil. Jafnframt eru sveitarfélaginu sendar nokkrar spurningar um málefnið.

Afgreiðsla bæjarráðs:
Ályktunin lögð fram. Bæjarstjóra er falið að svara spurningunum sem fram koma í erindinu.

12.Flugumferð yfir Sveitarfélaginu Vogum

1608001

Nokkrar kvartanir vegna ónæðis af flugumferð hafa borist sveitarfélaginu
Sveitarfélaginu hafa borist nokkrar ábendingar og kvartanir vegna ónæðis af flugumferð. Sveitarstjórn hefur einnig borist afrit Harðar Einarssonar af bréfi hans til Ísavia ohf., um neikvæð áhrif flugumferðar í þéttbýli Sveitarfélagsins Voga, þar sem bréfritari vonast til að tekið verði undir erindið og því fylgt eftir við rétt stjórnvöld.

Afgreiðsla bæjarráðs:
Erindið, ábendingarnar og kvartanirnar lagðar fram. Bæjarráð tekur undir kvartanir íbúa sveitarfélagsins, og beinir því til Ísavia ohf. að flugumferð um Keflavíkurflugvöll verði eftir föngum beint á þær flugbrautir vallarins sem valda íbúum sveitarfélagsins minnstu ónæði, sérstaklega að næturlagi.

13.Kortlagning viðkomustaða ferðafólks.

1606032

Erindi Ferðamálastofu dags. 23.júní 2016
Erindi Ferðamálastofu dags. 23. júní 2016. Í erindinu er óskað eftir samstarfi vegna mats og kortlagningar viðkomustaða ferðafólks.

Afgreiðsla bæjarráðs:
Erindið lagt fram. Þegar hefur verið brugðist við erindinu af hálfu Reykjanes Geopark f.h. sveitarfélaganna á Suðurnesjum.

14.Útbreiðsla lúpínu í Vogum

1607012

Erindi Þorvaldar Arnar Árnasonar dags. 18.júlí 2016, fyrirspurn um stefnu sveitarfélagsins varðandi útbreiðslu lúpínu í Vogum
Erindi Þorvaldar Arnar Árnasonar dags. 18.júlí 2016, fyrirspurn um stefnu sveitarfélagsins varðandi útbreiðslu lúpínu í Vogum.

Afgreiðsla bæjarráðs:
Erindið lagt fram. Bæjarráð vísar málinu til frekari umfjöllunar Umhverfis- og skipulagsnefndar, sem skoði möguleika á mótun stefnu varðandi útbreiðslu lúpínu innan lögsögu sveitarfélagsins.

Fundi slitið - kl. 08:30.

Getum við bætt efni síðunnar?